Fara í efni

Reglur um tölvunotkun

Tölvubúnaður Verkmenntaskólans á Akureyri er eign skólans og einungis ætlaður til náms, kennslu, kynningar og annarra þátta er samræmast markmiðum skólans.

  • Nemendur, sem eru að vinna verkefni vegna náms, hafa forgang í tölvur skólans.
  • Handhafi notendanafns í tölvukerfi skólans er ábyrgur fyrir allri notkun þess.
  • Skólinn áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum á gagnasvæðum nemenda til að tryggja að reglum um notkun búnaðarins sé fylgt.

Gert er ráð fyrir að hver nemandi hafi til umráða heimasvæði að hámarki 10 Mb nema sérstakt leyfi kerfisstjóra komi til

Óleyfilegt er

  • að veita öðrum aðgang að notandanafni sínu,
  • að reyna að tengjast tölvubúnaði skólans með öðru notandanafni en því sem notandi hefur fengið úthlutað,
  • að nota aðgang að neti skólans til þess að reyna að komast ólöglega inn á net eða tölvur í eigu annarra,
  • að sækja, senda, geyma eða nota á neti skólans forrit sem hægt er að nota til innbrota eða annarra skemmdarverka,
  • að breyta vinnuumhverfi á tölvum skólans þannig að það hafi áhrif á umhverfi og notkunarmöguleika annarra notenda,
  • að breyta, afrita eða fjarlægja vélbúnað, hugbúnað eða gögn sem eru í eigu skólans,
  • að afrita hugbúnað eða gögn í eigu annarra án leyfis eiganda,
  • setja inn hugbúnað á tölvur skólans án samþykkis kerfisstjóra,
  • að senda, sækja eða geyma klámefni eða ofbeldisefni,
  • að senda keðjubréf og annan ruslpóst,
  • að nota leiki í tölvunum aðra en þá sem fylgja stýrikerfinu,

Meðferð hvers konar matvæla er bönnuð í tölvuverum skólans.

Notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir samkvæmt þeim.

Brot á þessum reglum geta leitt til lokunar á aðgangi að tölvum skólans og sé um alvarlegt eða endurtekið brot að ræða brottvísunar úr skóla.

Getum við bætt efni síðunnar?