Fara í efni

Hjálparefni í stærðfræði

Þetta er skjámynd af einu myndbandinu.
Þetta er skjámynd af einu myndbandinu.
Hér má finna ýmsar síður þar sem nemendur geta leitað sér að aðstoð í stærðfræði

Undanfarin ár hefur Hilmar Friðjónsson kennari unnið að því að búa til stutt myndbönd – flest á bilinu 3-5 mínútur – þar sem hann útskýrir ýmsa þætti í stærðfræðinni í tali og mynd. Í heildina hefur hann búið til um 700 slík myndbönd og alltaf er að bætast í safnið. Nemendur í VMA geta haft aðgang að þessum myndböndum, skoðað þau og fengið útskýringar á ýmsum dæmum.

Myndböndin eru aðgengileg á moodle.vma.is – þar er mappa sem heitir VMASTÆ-myndbönd og nýtast þau sem hjálpartæki fyrir áfangana:

  • STÆF1BP04
  • STLÆF1AH05
  • STÆF1JF05
  • STÆF2RH05
  • STÆF2TE05
  • STÆF2AM05

Til þess að komast  inn velja nemendur áfangann (ekki kennarann) og skrá sig síðan inn á Moodle. Að því loknu þarf einungis að smella á hnapp sem merktur er Skráðu mig (Enroll me). Einfaldast og best er að hlaða niður Moodle appi og fara inn á því.

Hér má finna ýmsan góðan fróðleik á síðunni Rasmus.is

Khan Academy, stór og aðgengilegur námsbanki á netinu.

Annar gríðarlega stór gagnabanki með allskyns fræðsluerindum er Ted.