Listnám - kvöldskóli
Lýsing
Ekki í boði á haustönn 2025
Námið er tveggja anna nám sem miðar að því að opna heim sjónlista fyrir nemendum og undirbúa þá fyrir nám á háskólastigi á sviði skapandi greina sem byggja á sjónlistagrunni. Nemendum gefst tækifæri til að efla færni sína á ýmsum sviðum sjónlista. Áhersla er lögð á að opna gáttir inn í heim sjónræns tungumáls og skapandi vinnu. Verkleg framkvæmd er í fyrirrúmi og að nemendur finni eigin farveg og áhugasvið í sjálfstæðri sköpun. Þeir vinna ferlimöppu sem nýtist þeim við umsókn um framhaldsnám í listum og/eða hönnun á háskólastigi.
Inntökuskilyrði
Æskilegt er að nemandi hafi lokið stúdentsprófi (eða öðru námi á 3.þrepi), kominn áleiðs í námi eða hafi annan undirbúning sem gæti talist sambærilegur. Verði umsóknir fleiri en nemapláss verður horft til fyrra náms og annars undirbúnings við inntöku.
Skipulag
Námið er kvöldnám. Kennt verður þrjá daga vikunnar, mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá 16:20 til 21:00.
Einingargjald er 95.000 kr. á 1.önn og 82.500 kr. á 2.önn. Ofan á þetta innritunargjald 11.000 kr.
Annarskipulag
1.ÖNN | 2.ÖNN |
SJÓN1LF05 | LIME3MU05 |
SJÓN1TF05 | LISA3NÚ05 |
HUGM2HÚ05 | FORM1FH03 |
MARG2HG03 | MYNL2ÞF05 |
HÖTE3HS05 | FABL2FL05 |
LIME2ML05 | MYNL2GR05 |
HÖNN3VS05 | FEMA3FM02 |
LISA2RA05 | VSTÆ3FL03* |
VSTÆ3RÝ03* | |
VSTÆ3TÍ03* | |
38 einingar | 33 einingar |
*Nemendur velja einn af VSTÆ áföngunum.