Fara í efni  

Forvarnastefna

Verkmenntaskólinn á Akureyri leggur áherslu á að nemendur hans tileinki sér jákvætt viðhorf til heilbrigðs lífernis og öðlist sterka sjálfsmynd og sjálfsvirðingu. Lögð er áhersla á að styrkja félagslífs sem eflir félagsþroska nemenda og minnkar líkur á neyslu fíkniefna.

Skólinn vill einnig aðstoða þá sem hafa ánetjast vímuefnum og í skólanum gilda skýrar reglur um notkun tóbaks áfengis og annarra vímuefna.

Reglur:

  1. Neysla löglegra sem ólöglegra vímuefna er bönnuð í húsum skólans og á lóð hans. (Gildir jafnt um nemendur sem starfsmenn.)
  2. Neysla áfengis og ólöglegra vímuefna á ferðalögum eða skemmtunum á vegum skólans er bönnuð.
  3. Auglýsingar frá vínveitingahúsum eru bannaðar innan skólans, sem og annar áróður er hvetur til neyslu vímuefna.

Íhlutun:

  1. Verði nemandi uppvís að brotum á ofangreindum reglum kallar það skilyrðislaust á áminningu skólameistara, og er nemanda vísað til viðtals hjá forvarnafulltrúa þar sem fjallað er um vandamálið og bent á leiðir til úrbóta. Láti nemandi ekki af uppteknum hætti og verði vís að endurteknum brotum á ofangreindum reglum getur honum verið vísað úr skóla.
  2. Alvarleg brot, eins og neysla ólöglegra vímuefna eða dreifing og sala á þeim innan vébanda skólans getur leitt til tafalausrar brottvikningar úr skóla.
  3. Óskað er eftir því að nemendur VMA láti forvarnafulltrúa, námsráðgjafa, umsjónarkennara, skólahjúkrunarfræðing eða skólayfirvöld vita hafi þeir vitneskju  eða rökstuddan grun um hverskonar neyslu ólöglegra vímuefna eða sjálfsskemmandi hegðun nemenda.
  4. Forvarnafulltrúi hefur fastan viðtalstíma. Einstaklingar sem leita til hans njóta fulls trúnaðar.

Framkvæmd

  1. Forvarnafulltrúi hefur yfirumsjón með forvarnastefnu skólans, framkvæmd hennar og útfærslu. Forvarnafulltrúi sér um að kynna stefnuna fyrir starfsfólki og nemendum.
  2. Æskilegt væri að forvarnir kæmu inn í sem flestar námsgreinar skólans með einum eða öðrum hætti.
  3. Forvarnafulltrúi/forvarnaráð þarf að sjá um að reglulega séu haldnir fræðslufundir eða námskeið er tengjast forvörnum á sem flestum sviðum mannlífsins. Nemendum sé gerð skýr grein fyrir skaðsemi ólöglegra fíkniefna og séu hvattir til heilbrigðs lífernis og á þennan hátt komi forvarnir beint inn í félagslíf.
  4. Forvarnafulltrúi er tengiliður nemenda við yfirvöld skólans í vímuefnamálum og hann hefur einnig tengsl við aðila í samfélaginu er málið varðar.
Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 08:15-12:10 og frá 12:30-15:00. Á föstudögum er opið frá kl 08:15-13:00.