Fara í efni

KALD1IB03 - Kalda eldhús

KALD

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Námssamningur í matreiðslu
Í áfanganum er unnið að aðferðum við varðveislu matvæla. Nemandi kynnist sögu kalda eldhússins. Kenndar eru helstu aðferðir við marineringu. Nemandi fái undirstöðuþekkingu í farsgerð, patégerð, lögun á galantine, ballontine og terrine, pylsugerð, heit- og kaldreykingu, þurrsöltun og pækilsöltun. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að halda órofnum kæliferlum. Nemandi fái undirstöðuþekkingu í köldu eldhúsi. Nemandi lærir um bindieiginleika mismunandi hráefnategunda og eiginleika salts og ýmsa kryddtegunda. Einnig er farið yfir geymsluaukandi áhrif reykingar á matvæli.

Þekkingarviðmið

  • sögu kalda eldhússins
  • varðveislu matvæla
  • sígildum köldum réttum
  • heit- og kaldreykingu
  • þurrsöltum og pækilsöltun
  • mikilvægi þess að halda órofnum kæliferlum

Leikniviðmið

  • áætla skammtastærð með tilliti til fjölda rétta og samsetningar þeirra
  • gera heildstæða verkáætlun og vinna eftir henni
  • meta áhættu við framleiðslu, dreifingu og framreiðslu matvæla
  • skilja hver eru grundavallaratriði við framleiðslu og dreifingu matvæla
  • meta ferskleika hráefnis með tilliti til gæða

Hæfnisviðmið

  • sýni frumkvæði og hugmyndaauðgi við úrlausn verkefna
  • þekkja vel til aðferða við varðveislu á köldum mat
  • geta skipulagt vinnusvæði og framreiðsluferla með tilliti til þess hvert tilefnið er
  • geta sett upp köld hlaðborð og skipulagt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?