Fara í efni

VMKA3IB08 - Verkleg matreiðsla, kaldur matur

VMKA

Einingafjöldi: 8
Þrep: 3
Forkröfur: VMAT2IB12, námssamningur í matreiðlsu.
Í áfanganum er lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda. Nemendur vinna jafnframt með nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis og leita eftir nýrri nálgun á hefðbundnum aðferðum. Þeir vinna verkefni er lúta að framsetningu og hönnun kaldra rétta. Verkefnið felur í sér framkvæmda- og tímaáætlun og uppskriftir. Verkefni eru lögð fyrir í FFMF3Ib05

Þekkingarviðmið

  • sígildum köldum réttum
  • grugghreinsun og hlaupgerð
  • ólíkri framsettningu
  • réttum verkferlum kaldra rétta

Leikniviðmið

  • hanna og setja fram kalda rétti á matarfötum
  • hanna og setja upp köld hlaðborð
  • hanna og gera kalda smárétti
  • útbúa matseðla og matreitt þá fyrir mismunandi markhópa

Hæfnisviðmið

  • beita almennum og sérhæfðum aðferðum við úrlausnir verkefna
  • tileinka sér nýjungar og nýjar útfærslur við úrvinnslu hráefnis
  • geta unnið heildstætt að verkefnum í matreiðslu eftir viðurkenndum matreiðsluaðferðum
  • þróa eigin hugmyndir í matargerð.
  • beita faglegu innsæi og kunnáttu til að meta fyrirfram niðurstöður verkefna.
  • velja hráefni með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum og verðmætasköpun.
  • sýna fram á faglega víðsýni, sköpunarmátt og frumkvæði.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?