VMAT2IB12 - Verkleg matreiðsla, heitur og kaldur matur
VMAT
Einingafjöldi: 12
Þrep: 2
Forkröfur: VMAT1IB05, námssamningur í matreiðslu.
Þrep: 2
Forkröfur: VMAT1IB05, námssamningur í matreiðslu.
Í áfanganum er lögð áhersla á sígildar undirstöðu matreiðsluaðferðir. Að nemandi geti nýtt sér grunnmatreiðsluaðferðir og nýtt þær við matreiðslu á fjölbreyttu hráefni. Í verklegri kennslu er farið eftir þeim reglum sem gilda um viðurkennd gæðakerfi. Í áfanganum vinnur nemandi við farsgerð, lærir um kæliferla og bindieiginleika, einnig er farið í kald- og heitreykingu og þurr- og pækilsöltun. Nemandi vinnur með hrámarineringu á fiski, skelfiski og kjöti.
Þekkingarviðmið
- megin matreiðsluaðferðum með tilliti til hráefnis
- öllum soðum, undirstöðusúpum og undirstöðusósum
- hádegisverðarréttum og sígildum kvöldverðarréttum
- sígildum köldum réttum
- farsgerð, söltun, reykingu og marineringu á fisk og kjöti
- sígildum undirstöðu matreiðsluaðferðum
Leikniviðmið
- para saman hráefni og eldunaraðferðir
- nýta sér öll helstu tæki og handverkfæri í eldhúsi
- beita mismunandi skurði á grænmeti, fisk og kjöti
- meta ferskleika hráefnis með tilliti til gæða
- ganga frá eldhúsi samkvæmt faglegum hefðum, HACCP og gátlistum
- nota mælieiningar og fagleg hugtök
Hæfnisviðmið
- þróa kunnáttu og leikni í matreiðsluaðferðum
- geti sett upp hlaðborð með heitum og köldum réttum
- meta kröfur til hráefna
- meta kröfur til hráefna