VÍNM1MV03 - Vínfræði matreiðslu
Vínfræði matreiðslu
Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Forkröfur: Hafa lokið matreiðslu af annarri önn.
Þrep: 1
Forkröfur: Hafa lokið matreiðslu af annarri önn.
Áfanginn inniheldu grunnþekkingu í vínfræði, svo sem söguágrip víngerðar, helstu ræktunarlönd, svæði, og hvaða vínþrúgur eru algengastar í heiminum. Þekkingu í flokkun vína s.s. borðvín, styrkt vín og eimuð vín. Hvaða hitastig er æskilegt við framreiðslu borðvín og styrktar vína. Geymsla vína og hvernig lesa á miða vínflaskna. Komið er inn á þætti sem horft er til við val á víni með mat og á notkun þess við matargerð. Kynnt er hvernig vínseðlar eru byggðir upp
Þekkingarviðmið
- að greina og flokka sögu og grunnþætti víngerðar
- að greina framleiðsluferli borðvína, styrktra vína, eimaðra vína, bittera og líkjöra
- hvaða vínum er umhellt
- lestri miða vínflaskna, gert sér grein fyrir tegund, árgangi, þrúguinnihaldi og hvaðan úr heiminum vínið kemur
- samhengi í vínnotkun með mat og við matargerð
Leikniviðmið
- afla upplýsinga um vín, aðferðir við víngerð, einkenni, sérstöðu landa og héraða, landfræðilega legu þeirra og mismunandi jarðveg,
- afla upplýsinga um hin ýmsu vín og ferli sem á sér stað við gerð þeirra
- lesa vínmiða
- smakka vín, og þá hverju á að leita eftir ásamt því að skrá upplýsingar og niðurstöður á þar til gerð eyðublöð
Hæfnisviðmið
- vera meðvitaður um að í víngerð á sé hliðstæða þróunarsögu og matargerð
- sjá samhengi vín- og matargerðar ýmissa landa, héraða og svæða
- taka þátt í vínsmökkun og geta metið helstu einkenni vínsins s.s. útliti, lykt og bragði
- taka þátt í vínsmökkun þar sem vín er parað við mat og eiginleikar þrúgna geta undirstrikað bragðþætti rétta
- gæta hagkvæmni og hófs við notkun víns í matargerð ásamt að nýta bragðgefandi mýkjandi/meyrnandi eiginleika víns við marineringu og matreiðslu