Fara í efni

VÞVS2SV10 - Verkleg þjálfun á vinnustað

Verkleg þjálfun

Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: VÞVS1SF10
Vinnustaðanám fer fram í eldhúsi heilbrigðisstofnana eða stóreldhúsum með starfsleyfi. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf matartækna. Í upphafi tímabils setur nemendi sér fagleg markmið í vinnustaðanáminu. Kennari, leiðbeinandi og yfirmaður bera sameiginlega ábyrgð á vinnustaðanáminu. Í áfanganum er farið í mikilvægi undirbúnings, vinnslu og verklagsreglur á vinnustað. Farið er í matreiðslu á almennu fæði og helstu gerðir af sérfæði samkvæmt viðurkenndum gátlista heilbrigðisstofnana. Unnið er eftir gæðastöðlum vinnustaðarins.

Þekkingarviðmið

  • vinnuskipulagi fyrir eigin vinnu og mikilvægi vinnuskipulags á vinnustað
  • undirbúningi og grunnmatreiðslu
  • matreiðslu heitra aðal– og eftirrétta
  • matreiðslu sérfæðis, s.s. fæðis með breyttri áferð M1-M3
  • skömmtun á mat og að fara eftir skammtstærðum staðarins
  • vinnu við frágang og þrif á vinnustað
  • kröfum um hitastig við móttöku, meðhöndlun matvara og viðbrögð við frávikum
  • áhættuþáttum við matreiðslu og framreiðslu matvæla
  • mikilvægum ferlum við útsendan mat og gæðastaðla um innra eftirlit: HACCP

Leikniviðmið

  • undirbúa vinnuskipulag – verklýsingar
  • matreiða allt almennt fæði
  • matreiða fæði með breyttri áferð M1 – M3
  • skammta mat samkvæmt skömmtunarformi vinnustaðar
  • vinna eftir gæðastöðlum vinnustaðar

Hæfnisviðmið

  • útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis
  • skipulaggja verkferla og verkefnalista og vinna eftir þeim
  • meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
  • sýna fram á ábyrgð í umgengni á vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?