Fara í efni

VÞVS1SF10 - Verkleg þjálfun á vinnustað

Verkleg þjálfun á vinnustað

Einingafjöldi: 10
Þrep: 1
Vinnustaðanám fer fram í eldhúsi heilbrigðisstofnana eða stóreldhúsum með starfsleyfi. Nemandi fylgir leiðbeinanda við öll almenn störf matartækna. Í upphafi tímabils setur nemendi sér fagleg markmið í vinnustaðanámi. Kennari, leiðbeinandi og yfirmaður bera sameiginlega ábyrgð á vinnustaðanáminu. Í áfanganum lærir nemandi á helstu tæki og búnað í stóreldhúsum. Farið er í allar helstu matreiðsluaðferðir og algengasta hráefni til matargerðar með áherslu á íslenska matargerð. Áhersla er á fæðutengdar ráðleggingar Embættis Landlæknis um hollari matargerð. Unnið er eftir gæðastöðlum um innra eftirlit, HACCP.

Þekkingarviðmið

  • aðferðum og vinnulýsingum sem lúta að sérhæfðum verkferlum matreiðslu
  • vinnuskipulagi fyrir eigin vinnu og mikilvægi vinnuskipulags á vinnustað
  • vinnu við undirbúning og grunnmatreiðslu, s.s. kalda rétti og salöt
  • vinnu við frágang og þrif á vinnustað
  • skömmtunarfyrirkomulagi vinnustaðar og skammtastærðum
  • móttöku og innra eftirliti vinnustaðar
  • hreinlætisáætlunum á vinnustað
  • almennri matseðlagerð

Leikniviðmið

  • skipuleggja sérhæfða verkferla í samræmi við fyrirliggjandi verkefni
  • undirbúa salat og kaldar sósur
  • undirbúa og matreiða grænmetis-, grjóna- og pastarétti
  • undirbúa og matreiða alla helstu hádegisverðarrétti og nota til þess algengar íslenskar kjöt- og fiskafurðir
  • matreiða helstu íslenska þjóðarrétti
  • matreiða helstu íslenska þjóðarrétti
  • nota skammtastærðir vinnustaðar

Hæfnisviðmið

  • útskýra vinnuferla sem byggja á aðferðafræði er lýtur að matreiðslu almenns fæðis með áherslu á fæðutengdar ráðleggingar Embættis landlæknis
  • skipuleggja verkferla og verkefnalista og vinna eftir þeim í matreiðslu á almennu fæði
  • meta störf sín og annarra í matreiðslu á hlutlægan hátt
  • sýna fram á ábyrgð í umgengni á vinnustað
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?