Stuðningur við nema af erlendum uppruna
Í VMA er unnið út frá sérstakri móttökuáætlun þegar nemendur af erlendum uppruna byrja í skólanum.
Upplýsingar til foreldra og nemenda af erlendum uppruna er hægt að nálgast hjá Jóhönnu Björk Sveinbjörnsdóttir verkefnastjóra erlenda nema, johanna.b.sveinbjornsdottir@vma.is
Nemendur af erlendum uppruna sem stunda nám í grunnskóla á Íslandi sækja um skólavist líkt og aðrir grunnskólanemendur gegnum www.menntagatt.is og hefur grunnskólinn umsjón með því. Nemandi fær boð frá námsráðgjafa VMA um að koma í heimsókn í upphafi forinnritunar í skólann. Þar fær hann upplýsingar um skólann og námsframboð, einnig fær hann afhentan upplýsingabækling fyrir nýnema af erlendum uppruna (sjá tengla neðst á síðunni). Túlkur er fenginn til að túlka ef þurfa þykir.
- Móttökuviðtal fer fram eftir að innritun er lokið. Námsráðgjafi boðar til viðtalsins. Þar er farið yfir gögn frá grunnskóla og upplýsingar um bakgrunn nemanda. Helstu starfsþættir, reglur, kennsluhættir og áfangakerfi skólans er kynnt. Auk þess sagt frá stoðþjónustu skólans þ.e. þjónustu náms- og starfsráðgjafa, stoðkennslu, túlkaþjónustu, foreldraviðtölum og félagslífi. Umsjónarkennari kynntur ef því verður við komið.
-
Viðtal á miðri önn með foreldrum: Námsráðgjafi boðar foreldra í viðtal ásamt nemanda og umsjónarkennara/sviðsstjóra. Í viðtalinu er gengi nemandans og líðan hans í skólanum rædd sem og það sem er óljóst eða betur má fara. INNA skoðuð, námsval fyrir næstu önn og annað sem ástæða þykir að ræða.
-
Nemendur eru í sérstakri lífsleikniumsjón, eins og aðrir nýnemar, en auk þess eru þeir undir sérstakri handleiðslu námsráðgjafa.
-
Nemendur eru skráðir í ÍSAN-áfanga (íslenska sem annað tungumál) þar sem farið er í gegnum þætti er varða tök á íslenskri tungu og það samfélag sem þeir búa í (nokkurs konar lífsleikni fyrir nemendur af erlendum uppruna). Skoðuð er staða hvers og eins og metið hvert framhaldið verður með hliðsjón af því.
-
Nemendur fá leiðsögn um skólann hjá umsjónarkennurum sínum (í lífsleiknitímum).
-
Þeir einstaklingar sem ekki hafa verið í grunnskóla á Íslandi hafa samband við stjórnendur skólans eða námsráðgjafa og sækja um skólavist.
-
Hafa ber í huga að nemendur eru misgóðir í íslensku og því þarf að miða kennslu og mat við það (í þeim greinum sem því verður við komið).
Upplýsingabæklingur fyrir nýnema á ensku
Upplýsingabæklingur fyrir nýnema á pólsku
Upplýsingabæklingur fyrir nýnema á tælensku
Viðtal á heimasíðu VMA við nemendur í ÍSAN vorönn 2015
Uppfært 06.04.2016 (AMJ/SHM)