Fara í efni

Litun og þrykk - HÖTE2ET05

Í boði : Haust
Flokkur : Dagskóli

Lýsing

Nemandinn kynnist fjölbreyttum efnum, aðferðum, áhöldum auk tölvutækni sem tengjast taulitun, taumálun, tauþrykki og munsturgerð. Lögð er áhersla á að nemandinn auki við færni í að þróa hugmyndir sínar í tengslum við munsturgerð og litun efnis og garns. Nemandinn eykur við þekkingu sína á ólíkum vefjarefnum og litar- og hjálparefnum í tengslum við verkefnavinnu. Þá kynnist nemandinn verkum listamanna og hönnuða sem vinna með litun, þrykk og/eða munsturgerð. Nemandinn skrásetur vinnuferli sitt, setur það fram með skipulögðum hætti og ígrundar verk sín í samvinnu við kennara og samnemendur. 

 

Þekkingarviðmið - Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • eiginleikum helstu vefjarefna og hvaða áhrif þeir hafa á möguleika til litunar og þrykks
  • ólíkum tauþrykks og -litunaraðferðum og hjálparefnum sem þeim tengjast
  • grunnhugtökum taulitunar og -þrykks
  • muninum á tengdu og ótengdu símunstri og hvernig þau eru undirbúin fyrir þrykk.

 

Leikniviðmið - Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • Lita og þrykkja ólík vefjarefni
  • velja litar- eða þrykkefni og aðferðir sem henta hverju sinni.
  • Nýta eigin hugmyndir og beita tölvutækni við munsturgerð
  • Vinna eftir ferli þar sem eitt vinnslustig tekur við af öðru

Hæfniviðmið - Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Þróa eigin hugmyndir á sjálfstæðan hátt með rannsóknar- og skissuvinnu.
  • Velja viðeigandi efni og aðferðir til að breyta lit og yfirborði vefjarefna út frá eigin hugmyndum og geta rökstutt ákvarðanir með tilliti til faglegrar þekkingar.
  • Nýta umhverfi sitt, fjölbreyttar kveikjur og verk listamanna og hönnuða sem innblástur fyrir eigin verk.
  • ígrunda og ræða um verk sín og vinnuferli í samvinnu við kennara og samnemendurog setja eigin verk fram til kynningar á skýran hátt.
Getum við bætt efni síðunnar?