Fara í efni

Frumsýning á Ronju á morgun

Ásta Ólöf Jónsdóttir (til hægri) í hlutverki Ronju ræningjadóttur og Elín Karlotta Anton í hlutverki…
Ásta Ólöf Jónsdóttir (til hægri) í hlutverki Ronju ræningjadóttur og Elín Karlotta Anton í hlutverki Bjarkar Borkadóttur.

Að undanförnu hefur Gryfjan smám saman verið að breytast í leikhús enda mun Leikfélag VMA frumsýna á morgun, laugardaginn 14. febrúar kl. 14, fjölskylduleikritið um Ronju ræningjadóttur sem byggir á samnefndri sögu eftir Astrid Lindgren. Leikstjóri er Pétur Guðjónsson.

Eins og sagt var frá hér á heimasíðunni í gær er uppfærslan á verkinu skemmtilegt samstarfsverkefni við Brekkuskóla á Akureyri því fimm leikarar í uppfærslunni koma úr Brekkuskóla en aðrir leikarar og aðstandendur sýningarinnar eru nemendur VMA.

Leikritið um Ronju ræningjadóttur hefur oft verið sett á svið hér á landi en þó eru ansi mörg ár síðan það var síðast sett upp á Eyjafjarðarsvæðinu. Auk leikuppfærslu hefur verið gerð kvikmynd upp úr sögunni um Ronju og er hún til í íslenskri talsetningu.

Leikritið um Ronju er söngleikur. Tónlistin er eftir danska tónlistarmanninn Sebastian og eru nokkur vel þekkt lög í verkinu. Með burðarhlutverkið í sýningunni, sjálfa Ronju ræningjadóttur, fer Ásta Ólöf Jónsdóttir.

Ronja ræningjadóttir er sjötta uppfærsla Péturs Guðjónssonar hjá Leikfélagi VMA. Áður hefur hann leikstýrt Tjaldinu (2013), Bjart með köflum (2016), Ávaxtakörfunni (2018) og söngleiknum Grís (2021) auk þess sem hann leikstýrði einþáttungnum Mér er fokking drullusama árið 2017.

Samlestur hófst á Ronju í nóvember og síðan hefur verkið smám saman verið að taka á sig mynd. Leikhópurinn hefur sjálfur lagt drjúga hönd á plóg í ótal hlutum sem þarf að vinna utan þess að standa á sviðinu og túlka hlutverkin. Það á t.d. við um markaðs- og kynningarmál, búninga, leikmynd og fl. Nemendur á listnáms- og hönnunarbraut hafa lagt hönd á plóg við leikmyndina og það hafa einnig gert nemendur og kennarar við byggingadeild.

Þessar myndir tók Hilmar Friðjónsson á æfingu í Gryfjunni á dögunum.

Sem fyrr segir verður frumsýning á Ronju ræningjadóttur á morgun, laugardaginn 14. febrúar kl. 14. Aðrar sýningar verða 15., 21., 22., 28. febrúar og 1. mars. Sýningarnar eru allar kl. 14 fyrir utan 22. febrúar en sú sýning byrjar kl. 17 í Gryfjunni í VMA. Miðasala er hér.