Fimm nemendur úr Brekkuskóla í Ronju
Við uppfærsluna á Ronju ræningjadóttur, sem verður frumsýnd nk. laugardag, er Leikfélag VMA í skemmtilegu samstarfi við Brekkuskóla sem felst í því að fimm nemendur skólans koma fram í sýningunni.
Í leikritinu er Ronju ræningjadóttur fylgt eftir þar sem hún býr með foreldrum sínum og ræningjahópi í Matthíasarskógi. Í upprunalegu sögunni kynnist hún Birki, syni Borka, annars ræningjaforingja og erkióvinar Matthíasar föður Ronju, og með þeim tekst djúp vinátta sem litin er hornauga af foreldrum þeirra. Í uppfærslu Leikfélags VMA er farin sú leið að afkomandi Borka er ekki karlkynspersónan Birkir heldur kvenkynspersónan Björk sem leikin er af Elínu Karlottu Anton, nemanda í 8. bekk í Brekkuskóla. Hinar fjórar stúlkurnar úr Brekkuskóla, María, Marta, Erika og Anna Soffía, sem allar eru í 5. bekk skólans, fara með hlutverk rassálfa og ræningjabörn í sýningunni. Tveir rassálfar eru í hverri sýningu og því skipta María, Marta, Erika og Anna Soffía með sér sýningunum.
Pétur Guðjónsson, leikstjóri uppfærslunnar á Ronju, hefur kennt leiklistarval í Brekkuskóla og þar hefur hann m.a. verið að leiðbeina Elínu Karlottu. Þegar upp komu forföll í leikhópnum í janúar bauð hann Elínu að spreyta sig á hlutverki Bjarkar og hún ákvað að slá til. Einnig fannst Pétri fara vel á því að hafa rassálfana í sýningunni yngri en aðra leikara í sýningunni. Því var leitað til stúlknanna fjögurra úr Brekkuskóla. Pétur segir þær allar standa sig frábærlega og vill koma á framfæri kærum þökkum til allra þeirra sem gerðu kleift að koma á þessu samstarfi við Brekkuskóla og stelpurnar fimm taki þátt í sýningunni.
Elín Karlotta segist hafa tekið þátt í skólaleikriti í Brekkuskóla en þetta sé mun stærra og viðameira en hún hafi áður tekist á við. Hún segir mjög gaman að taka þátt í Ronju og andinn í leikhópnum sé frábær.
Elín segir að tilfinningin þegar svo stutt er í frumsýningu á verkinu sé blanda af tilhlökkun og smá stressi. Ekki bara hefur hún þurft að læra töluverðan leiktexta Bjarkar á stuttum tíma heldur einnig söngtexta. Hún segir sönginn ekki fyrirstöðu því hún hafi mikla ánægju af því að syngja og fái tilsögn í söng hjá Margréti Árnadóttur í Tónlistarskólanum á Akureyri.
Hér er hægt að kaupa miða á sýninguna.