Fara í efni

VMA tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna

Hluti af tæknibúnaði í sjálfbæru kennslustofu rafdeildar í VMA.
Hluti af tæknibúnaði í sjálfbæru kennslustofu rafdeildar í VMA.

Verkmenntaskólinn á Akureyri (rafdeild) er tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna í flokki iðn- og verkmennta fyrir sjálfbæra kennslustofu sem rafdeild skólans setti upp fyrr á þessu ári. Til þess að afla rafmagns fyrir kennslustofuna, sem er ein af kennslustofum rafdeildar á B-gangi skólans, var komið fyrir sólarsellum á þaki skólans og einnig lítilli vindrafstöð, í samstarfi við og með stuðningi frá Umhverfis- og orkustofnun.

Forsagan að þessari orkuframleiðslu er sú að kennarar í rafdeild höfðu velt fyrir sér hvernig þeir gætu komið námsefni um sjálfbærni og nýorku inn í kennsluna, ekki síst þá verklegu, að nemendur lærðu um tæknina með því að fást við raunveruleg viðfangsefni og gætu farið út á vinnumarkaðinn með þekkingu og hugarfar til að leysa orkumál samtímans.

Í maí sl. var sjálfbæra kennslustofan notuð í Erasmus+ verkefninu GREEN. Þar reiknuðu nemendur út framleiðslugetu miðað við breiddargráðu, mældu og báru saman við aðrar lausnir.

Í umsögn með tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna segir:

VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.

Það er í senn ánægjulegt og athyglisvert að þetta er í fjórða skiptið á sex árum sem VMA og starfsmenn hans eru tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna. Fyrri tilnefningar eru:

2021 – Hilmar Friðjónsson kennari í stærðfræði og viðskiptagreinum
2022 - Hársnyrtideild VMA
2023 – Haukur Eiríksson kennari í rafgreinum

Hér eru tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026.

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhendir Íslensku menntaverðlaunin á Bessastöðum 10. nóvember nk.