Fara í efni

Green-verkefni þessa viku í VMA

Þessa viku er í VMA unnið að viðamiklu evrópsku Erasmus+ verkefni fimm skóla í jafn mörgum löndum. Verkefnið ber heitið Green (Green Revolution Environmental Ecucation Nurturing) og vísar til grænnar orku. Í þessum fyrsta hluta verkefnisins í VMA er sjónum beint að endurnýtanlegri orku á Íslandi – bæði vatns- og jarðhitaorku – og hvernig Íslendingar nýta jarðvarmann til m.a. húshitunar.

Skólarnir sem taka þátt í verkefninu eru auk VMA Elektrotehnicka i prometna skola Osijek í Króatíu,  Agrupamento de Escolas Dr. Serafim í Portúgal, Stichting Onderwijs Midden Limburg (SOML) í Hollandi og ITÜ Mesleki ve Teknik Anadolu Lisesi í Tyrklandi. 

Frá hverjum skóla koma 3 kennarar og 4 nemendur og frá rafdeild VMA taka þátt í verkefninu 9 kennarar og 8 nemendur, samtals 45 manns. Verkefninu er stýrt frá Króatíu, þangað fóru þrír kennarar frá VMA í janúar sl. til þess að taka þátt í skipulagningu verkefnisins. Þessi verkefnavika er einungis fyrsti hluti Green-verkefnisins því á næstu önnum hittast nemendur og kennarar frá öllum þessum skólum í þrígang, í Portúgal, Hollandi og Tyrklandi.

Fyrir nokkrum árum tóku þrír af þessum skólum, VMA og skólarnir í Hollandi og Tyrklandi, þátt í stóru verkefni sem nefndist ElecoTeam og lauk 2024. Það verkefni vakti athygli og fékk verðlaun frá Rannís.

Verkefnið hófst í dag og stendur fram á föstudag. Í dag var Sigurður Friðleifsson, sviðsstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, með fyrirlestur fyrir þátttakendur þar sem hann fór vítt og breitt yfir sviðið í orkumálum Íslendinga. Á morgun, þriðjudag, verða fyrirlestrar frá annars vegar Rarik og hins vegar Norðurorku. Vinnuhópar hófu störf í dag og halda starfi sínu áfram á morgun og á fimmtudag, uppstigningardag. Raunar er uppstigningardagur stóri vinnudagurinn í verkefninu og þá geta þátttakendur lagt undir sig húsnæði VMA því kennsla fellur niður þann dag, eins og vera ber á lögboðnum frídegi. Næstkomandi miðvikudag fara þátttakendur í fræðslu og náttúruskoðun. Fyrst verður ekið austur að Goðafossi en síðan liggur leiðin í Laxárvirkjun og upp á Þeistareyki þar sem gufuaflsvirkjunin verður skoðuð. Þaðan verður ekið í Mývatnssveit en deginum lýkur með baðferð í Skógarböðin.

Á föstudag verður vinna vikunnar dregin saman og kynnt og á hádegi þann dag lýkur verkefninu.

Þess má geta að rafdeild VMA hefur unnið að afar áhugaverðu verkefni á síðustu mánuðum sem fellst í að skoða ýmsar hliðar á framleiðslu raforku með annars vegar sólarsellum og hins vegar lítilli vindrafstöð. Bæði vindrafstöðinni og sólarsellunum hefur verið komið fyrir upp á þaki VMA og tengjast þar til gerðum búnaði í kennslustofu á B-gangi skólans. Þessi búnaður og græn orkuframleiðsla með honum verður m.a. til skoðunar í Green-verkefninu.