Fara í efni

Sýna á Amtsbókasafninu og Læknastofum Akureyrar

Samsýning nemenda á listnáms- og hönnunarbraut VMA er á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Samsýning nemenda á listnáms- og hönnunarbraut VMA er á Amtsbókasafninu á Akureyri.

Í þessum mánuði eru til sýnis á Amtsbókasafninu á Akureyri verk nemenda listnáms- og hönnunarbrautar VMA.

Nemendurnir sem sýna verk sín eru:

Neó Týr Hauks – Pokerface
Árvök Snædal – Án titils
Kristjana Bella Kristinsdóttir – Hvað er það sem?
Eva Dís Davíðsdóttir – Háhyrningur
Birta Nótt Kröyer – Sjálfsmynd/Skjaldbaka
Helena Ýr Pálsdóttir – Án titils
Númi Kristínarson – 9 stig skemmtunar

Einnig stendur yfir sýning á verkum Núma Kristínarsonar á Læknastofum Akureyrar á Glerártorgi. Sýningin, sem ber yfirskriftina Dagur, var opnuð 6.  mars sl. og hún stendur til 22. maí nk. Númi er á öðru ári á listnáms- og hönnunarbraut og er þetta hans önnur einkasýning. Í kynningu segir að sýningin sé safn af verkum úr vinnustofu Núma í ævintýri hans í leit að nýjum stíl.