Fara í efni

Pokerface Neós Týs

Neó Týr Hauks við akrílverk sitt Pokerface.
Neó Týr Hauks við akrílverk sitt Pokerface.

„Ég hef lengi haft áhuga á listum og það lá því beinast við að fara í listnám í framhaldsskóla. Niðurstaða mín var að fara á listnámsbrautina hér í VMA og ég sé ekki eftir því. Námið hefur verið mjög áhugavert og skemmtilegt og það hefur víkkað út sjóndeildarhringinn hjá mér og ýtt undir að fara ólíkar leiðir,“ segir Neó Týr Hauks, sem er á lokaönn listnáms- og hönnunarbrautar VMA og útskrifast í maí nk.

Neó hóf námið í VMA haustið 2023, kom þaðan úr Síðuskóla á Akureyri. Frá barnsaldri stundaði Neó fimleika en skipti ellefu ára yfir í dansinn, hefur markvisst æft síðan hjá Steps DanceCenter á Akureyri og er núna hluti af svokölluðum úrvalshópi Steps. Dansinn er af ýmsum toga, m.a. djassballett og nútímadans, og bæði er dansaður sólódans og hópdans. Að jafnaði er æft í rúma fimm tíma á viku en þessa dagana eru mun stífari æfingar því að tæpum hálfum mánuði liðnum verður í Borgarleikhúsinu í Reykjavík undankeppni fyrir heimsmeistaramótið í dansi – Dance World Cup – í Dublin á Írlandi – 8.-18. júlí nk. - og þangað hefur Neó sett stefnuna. Gangi það eftir verður heimsmeistaramótið í Dublin það fjórða sem Neó fer á.

Nú hangir upp á vegg gegnt austurinngangi skólans verk eftir Neó sem kallast Pokerface. Verkið, sem var unnið í akrílmálunaráfanga hjá Björgu Eiríksdóttur á haustönn 2025, sýnir Neó í þremur mismunandi útfærslum. Frumdrög að verkinu urðu til sem skissa sl. sumar og úr varð að Neó vildi gera þrjú ólík afbrigði sjálfsmyndar – á einni þeirra brýst reiðin fram sem Neó segir raunar ekki passa alveg við sig. En hér fær sköpunarmátturinn notið sín og þá er allt leyfilegt!

Núna á lokaönninni vinnur Neó að lokaverkefni sínu í náminu. Það verður blanda dansmyndbands, málverks og ljósmynda. Í myndbandinu mun Neó að sjálfsögðu dansa eigin dans.

Að náminu í VMA loknu hefur Neó áhuga á dansnámi í útlöndum. Til að byrja með er horft til eins árs náms, til þess að láta reyna á að vera í fullu dansnámi. Verði tilfinningin  góð sé líklegt að haldið verði áfram til BA-prófs. Nú þegar segist Neó hafa fengið jákvætt svar frá skóla í Noregi en fleiri lönd séu inni í myndinni, t.d. Svíþjóð, Austurríki og Holland.