Að gefa sköpunarþörfinni og ímyndunaraflinu lausan tauminn
Vegur Kristjönu Bellu Kristinsdóttur – eða Bellu eins og hún er jafnan kölluð – í nám á listnáms- og hönnunarbraut VMA var alltaf beinn og breiður. Í grunnskóla , fyrst í Lundarskóla og svo Oddeyrarskóla á Akureyri, var eitt af hennar helstu áhugamálum að teikna og mála. Hún var einnig í annarri listrænni sköpun eins og að standa á leiksviði og dansa og enn er dansinn eitt af áhugamálunum. Bella segir að það hafi því ekki verið erfitt val þegar hún kaus að fara í listnám í VMA og strax í fyrstu vikunni í náminu hafi hún fundið að þetta væri hennar rétta hilla.
Bella er nú á lokaönn sinni í náminu í VMA og þegar hún horfir um öxl finnst henni það mikilvægasta sem hún tekur úr náminu að hafa fengið hvatningu til þess að beita tjániningunni, ímyndunaraflinu og sköpunarþörfinni í myndlistinni. Í því hafi falist ákveðið frjálsræði og um leið hvatning til þess að læra að treysta á sjálfa sig og fara sínar leiðir í listinni. Hún segir einnig mikilvægt hversu marga og ólíka miðla hafi verið unnið með í náminu, ýmsar dyr hafi verið opnaðar sem veiti nýja og áður óþekkta sýn á hlutina.
Bella nefnir að kvikmyndirnar þyki sér áhugaverður miðill en akrílmálverkið standi hjarta sínu næst. Þess vegna hafi hún valið að mála akrílverk sem lokaverkefni sitt, raunar fjögur málverk, sem hafi þemað ofskynjun. Að undanförnu hefur hún verið að skissa og undirbúa málunina, sem hún segist byrja á í mars.
Þessa dagana er upp á vegg gegnt austurinngangi skólans akrílverk eftir Bellu sem hún vann á haustönn í akrílmálunaráfanga hjá Björgu Eiríksdóttur. Verkið, sem Bella kallar Hvað er það sem?, er afar litskrúðugt. Hún segir þetta vera einskonar tilbrigði við ímyndaða dragdrottningu.
En hvað tekur við að loknu náminuí VMA? Bella segist stefna á að vinna í eitt ár og síðan sé stefnan sett í áframhaldandi nám. Hún segist hafa áhuga á að skella sér í lýðháskóla, til að byrja með, en í framhaldinu hafi hún fullan hug á háskólanámi í einhverjum anga listrænnar sköpunar, frekast í myndlist eða kvikmyndum.