Fara í efni

Nemendur af viðskipta- og hagfræðibraut VMA stóðu sig frábærlega í Tromsø

Íslensku þátttakendurnir á Arctic Youth Championship í Tromsö í Noregi.
Íslensku þátttakendurnir á Arctic Youth Championship í Tromsö í Noregi.

Í kjölfarið á vörumessu ungra frumkvöðla í apríl sl., þar sem nemendur af viðskipta- og hagfræðibraut tóku þátt með þrjú fyrirtæki – VEX – lýðheilsuarmband, Ekki GOOGLA og Norðurrækja (Holy Shrimp) – var þeim boðið að taka þátt í alþjóðlegu frumkvöðlamóti, Arctic Youth Championship, í Tromsø í Norður-Noregi 18. til 20. maí sl. á vegum Ungt Entreprenørskap Arktis og JA Ungra frumkvöðla. Þarna komu saman nemendur frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi til að kynna fyrirtæki sín, taka þátt í dómaraviðtölum, sviðskynningum og samstarfsverkefnum.

VMA sendi tvö af áðurnefndum þremur fyrirtækjum til leiks, VEX og Holy Shrimp, sem bæði stóðu sig afar vel og voru bæði skólanum og Íslandi til mikils sóma. Þessar myndir voru teknar í ferðinni.

Fyrirtækið VEX náði frábærum árangri og hlaut 3. sæti í Social Entrepreneurship Award (samfélagsfrumkvöðlaverðlaunum) fyrir verkefni sitt sem snýr að geðheilsu og stuðningi við ungt fólk. Verkefnið vakti mikla athygli fyrir samfélagslega nálgun, nýsköpun og metnað.

Fyrirtækið Holy Shrimp kynnti frostþurrkaðar íslenskar rækjur sem hollt og próteinríkt snakk unnið úr íslensku hráefni. Hugmyndin vakti einnig mikinn áhuga þátttakenda og dómara enda sameinar verkefnið nýsköpun, sjálfbærni og verðmætasköpun úr íslensku sjávarfangi.

Þá var Orri Sær Ottósson einnig hluti af teymi sem hlaut viðurkenninguna „Best AYC Group 2025“ fyrir framúrskarandi samvinnu og þátttöku í alþjóðlegu hópverkefni mótsins.

Ferðin var afar lærdómsrík fyrir nemendurna sem fengu tækifæri til að kynna hugmyndir sínar á alþjóðlegum vettvangi, mynda tengsl við aðra unga frumkvöðla og öðlast dýrmæta reynslu í nýsköpun, samskiptum og teymisvinnu.

Íris Ragnarsdóttir, kennari og fagstjóri viðskipta- og hagfræðibrautar VMA, sem hefur kennt frumkvöðlafræðiáfangann í VMA í vetur og fór með nemendunum til Tromsø, segir að verkefni sem þessi séu afar mikilvæg fyrir ungt fólk. „Svona verkefni skipta miklu máli fyrir nemendur. Þeir læra að koma fram, eiga samskipti og kynna hugmyndir sínar á öðru tungumáli, vinna með fólki frá öðrum löndum og stækka tengslanetið sitt. Þetta er reynsla sem styrkir bæði sjálfstraust og framtíðarmöguleika nemenda.“ Íris bætir við að nemendurnir hafi lagt gríðarlega mikla vinnu í verkefnin sín og staðið sig ótrúlega vel. „Það hefur verið virkilega gaman að fylgjast með þeim vaxa í þessu ferli og þeir voru skólanum og landinu til mikils sóma í Tromsø. Það má með sanni segja að framtíðin sé björt hjá þessum öflugu VMA-frumkvöðlum,“ segir Íris Ragnarsdóttir.