Fara í efni

VMA-frumkvöðlar kynna fyrirtæki sín í Smáralind

Bróðurpartur nemendanna sem kynnir vörur sínar í Smáralind um helgina. Þegar myndin var tekin í gær …
Bróðurpartur nemendanna sem kynnir vörur sínar í Smáralind um helgina. Þegar myndin var tekin í gær voru þrír nemendanna þegar farnir suður.

Í dag og á morgun verður árleg vörumessa ungra frumkvöðla í Smáralind í Kópavogi. Þar mun VMA eiga fulltrúa, nemendur í frumkvöðlaáfanga hjá Írisi Ragnarsdóttur kennara kynna þrjú afar athyglisverð og vel unnar viðskiptahugmyndir eða kannski öllu heldur fyrirtæki því í öllum tilfellum er boðið upp á fullunna vöru. Í þessum áfanga hefur verið lögð áhersla á að vinna með raunverulegar viðskiptahugmyndir frá hugmyndastigi til fullmótaðrar vöru eða þjónustu. Nemendurnir verða í Smáralind í dag og kynna fyrirtækin, svara spurningum og selja vörur sínar.

Í ferlinu hafa nemendur farið í gegnum lykilþætti frumkvöðlastarfs, þar á meðal markaðsrannsóknir, vöruþróun, verðlagningu, kynningarmál og undirbúning fyrir sölu. Markmiðið er að efla skilning þeirra á rekstri fyrirtækja og gefa þeim tækifæri til að prófa sig áfram í raunverulegu viðskiptaumhverfi.

Verkefnin þrjú sem nemendur kynna eru fjölbreytt og skapandi:

  1. Vex – lýðheilsuarmband. Sem hluti af verkefninu hafa nemendur smíðað samnefnt app sem er hægt að hlaða niður fyrir bæði Android og Apple snjallsíma. Lýðheilsuarmbandið beinir sjónum að andlegri heilsu, ekki síst ungs fólks, enda er glíman við andlegan kvíða algengari en margur hyggur. Ekki er þó hægt að virkja appið nema kaupa armbandið og tengja við QR-kóða.
  2. EKKI GOOGLA – borðspil. Spilið er hugsað fyrir 2-4 þátttakendur og eru tíu spurningaflokkar. Nemendur hafa unnið spilið frá grunni, útlit og hugmyndina frá a til ö. Þeir fengu Prentmet Odda í lið með sér og þar voru spurningaspjöldin og kassarnir prentaðir.
  3. Norðurrækja – frostþurrkuð rækja. Nemendur fengu rækjuna frá Siglufirði og hún hefur verið frostþurrkuð í Borgum – rannsóknahúsi HA. Ákveðnum aðferðum er beitt til þess að draga úr fiskilyktinni og er óhætt að segja að vel hafi tekist til því varan er því sem næst lyktarlaus. Hún er seld í litlum plastpokum. Frostþurrkuð rækja er mjög létt en mjög próteinrík vara, einskonar snakk sem má t.d. ímynda sér að nýtist afar vel fyrir útivistarfólk, t.d. fjallgöngufólk.

Í vinnu sinni hafa nemendur þurft að takast á við fjölbreytt samskipti og samvinnu innan hópanna, bæði jákvæða og krefjandi þætti. Í því felst mikilvægur lærdómur því nemendur þufa að æfa sig í að finna lausnir, taka ábyrgð og vinna með ólíku fólki á uppbyggilegan hátt. Hluti af verkferlinu fellst í að vera lausnamiðaður og halda áfram þrátt fyrir áskoranir.

„Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með vinnu nemenda í þessu verkefni. Ég er afar stolt af þeim öllum, á stuttum tíma hafa þau sýnt mikinn metnað og byggt upp glæsilegar hugmyndir og fyrirtæki,“ segir Íris Ragnarsdótti kennari.