Fara í efni

„Með allt á hreinu“ verður uppsetning vetrarins hjá Leikfélagi VMA

Stuðmenn frumsýndu kvikmyndina Með allt á hreinu, sem leikuppfærslan byggir á, í desember 1982. Þett…
Stuðmenn frumsýndu kvikmyndina Með allt á hreinu, sem leikuppfærslan byggir á, í desember 1982. Þetta varð ein vinsælasta kvikmynd Íslandssögunnar. Og leikuppfærslan hefur líka notið mikilla vinsælda.

Leiksýning vetrarins hjá Leikfélagi VMA verður söngleikurinn Með allt á hreinu sem byggir á samnefndri og sögufrægri kvikmynd sem var frumsýnd árið 1982 og er fyrir löngu orðin klassík. Áætluð frumsýning er 19. febrúar 2027 í Gryfjunni í VMA. Í myndinni og leikritinu er fjöldi þekktra dægurlaga sem Stuðmenn og Grýlurnar gáfu út á sínum tíma.

Með allt á hreinu er án efa ein af allra vinsælustu íslensku kvikmyndum sögunnar. Myndin og leikritið fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar. Ýmis vandræði koma upp á milli þeirra, ekki síst vegna sambandsslita söngvara og forkólfa beggja sveita, Stinna Stuð og Hörpu Sjafnar. Í sviðssetningu verksins er fjallað um hina miklu og hörðu baráttu kvennasveitarinnar Gæranna og karlasveitarinnar Stuðmanna um að „meika það“.

Ásta Ólöf Jónsdóttir formaður Leikfélags VMA segist vera mjög spennt fyrir þessu verkefni. Hún segist hafa séð uppfærslu nemenda Framhaldsskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki árið 2024 á verkinu og hafi heillast af því.

Þó svo að allir sem komnir eru á miðjan aldur og þar yfir kannist vel við Með allt á hreinu, enda var kvikmyndin frumsýnd fyrir rúmum fjórum áratugum, segir Ásta að það sé ekki svo að nemendur á framhaldsskólaaldri þekki almennt til myndarinnar. Hins vegar telji hún nokkuð víst að nemendur kannist við flest lög Stuðmanna og Grýlanna í myndinni – og þar með í leikritinu, því mikið af tónlistinni í myndinni er einnig í leikuppfærslunni.

Persónurnar í verkinu eru um þrjátíu en ugglaust verða einhverjir leikaranna í nokkrum minni hlutverkum. Auk leikara þarf auðvitað tæknifólk, sviðsfólk og búningagerðarfólk, svo dæmi séu tekin. Það þarf með öðrum orðum marga til þess að taka þátt í uppsetningunni. Ásta Ólöf segir að þann 2. desember nk. 16 geti allir áhugasamir komið í leikprufur og í kjölfarið verði skipað í hlutverk. Leikarar fái handrit í hendur fyrir jólafrí og síðan hefjist æfingar á fullu strax eftir áramót. Ásta Ólöf hvetur nemendur til þess að koma í prufur og einnig að láta vita af áhuga á að taka þátt í uppfærslunni. Allar duglegar og viljugar hendur séu vel þegnar í svo viðamikið og skemmtilegt verkefni. 

Ásta Ólöf er á öðru ári í VMA. Hún lét strax til sín taka í leiklistinni á fyrsta námsári sínu þegar hún lék Ronju ræningjadóttur í samnefndri uppfærslu Leikfélags VMA í febrúar 2026.

Kolbrún Lilja Guðnadóttir hefur verið ráðin leikstjóri Með allt á hreinu. Hún þekkir vel til í Leikfélags VMA því hún stýrði uppfærslu félagsins á Tröll árið 2020 í Menningarhúsinu Hofi. Núna starfar Kolbrún Lilja m.a. sem kennari við sviðslistabraut MA. Af öðrum leiksýningum sem hún hefur leikstýrt má nefna Fólkið í blokkinni hjá Freyvangsleikhúsinu árið 2023 og Bróðir minn ljónshjarta hjá Leikfélag Hörgdæla árið 2024.

Eðli málsins samkvæmt er í mörg horn að líta þegar settur er á svið söngleikur eins og Með allt á hreinu. Auk hins talaða orðs þarf að þjálfa sönginn, sem er auðvitað ríkur þáttur í uppfærslunni, og allir þurfa líka að standa klárir á danssporunum. Fagfólk verður fengið til þess að halda í þessa þræði en Ásta Ólöf segist á þessu stigi málsins ekki geta upplýst hverjir taki þetta að sér.