Mars Baldurs gefur út sína fyrstu bók
23.04.2026
Mars Baldurs, fyrrverandi nemandi í VMA og nú nemandi í nútímafræði við Háskólann á Akureyri, gefur út í dag, á sumardaginn fyrsta, sína fyrstu bók, sem hún kallar Hamingja. Formleg útgáfa bókarinnar verður á Sigurhæðum í dag kl. 13. Við sama tækifæri verður gefin út á bók smásaga séra Hildar Eirar Bolladóttur, Prestur fer á stefnumót. Þessar tvær smásögur eru gefnar út í bókarformi í svokallaðri Pastel-ritröð Flóru menningarhúss.
Mars Baldurs lét að sér kveða á ritlistabrautinni á námstímanum í VMA, varð m.a. í fyrsta sæti í Ungskáld-ritlistakeppninni í desember 2022 fyrir smásöguna Þágufallssýki.
Í dag, á útgáfudegi Hamingju, birtist á vef Háskólans á Akureyri viðtal við Mars Baldurs.