Fara í efni

Mahaut er Sumarlistamaður Akureyrar 2026

Mahaut Ingiríður Matharel. Myndin var tekin í VMA í janúar 2025.
Mahaut Ingiríður Matharel. Myndin var tekin í VMA í janúar 2025.

Mahaut Ingiríður Matharel er Sumarlistamaður Akureyrar 2026. Þetta var tilkynnt í árlegu hófi Akureyrarbæjar á sumardaginn fyrsta.

Hún er afar fjölhæf í listsköpun sinni, bæði í tónlist og myndlist, eins og sést í þessu viðtali við hana hér á heimasíðu VMA í febrúar 2023 en hún brautskráðist sem stúdent af listnáms- og hönnunarbraut VMA í maí 2025. Annað viðtal birtist á heimasíðunni við Mahaut í janúar 2025.

VMA sendir Mahaut heillaóskir með að hafa verið útnefnd Sumarlistamaður Akureyrar 2026.

Þetta er annað árið í röð sem ungur listamaður, nýlega brautskráður af listnáms- og hönnunarbraut VMA, er útnefndur Sumarlistamaður Akureyrar því á síðasta ári hlotnaðist Guðmundi Tawan Víðissyni þessi heiður. Hann brautskráðist 2024 af listnáms- og hönnunarbraut VMA og er núna á vordögum að ljúka fyrsta ári í námi í fatahönnun við Listaháskóla Íslands.