Fara í efni

Þar með var teningnum kastað

Guðmundur Tawan Víðisson útskrifaðist vorið 2024 af textílsviði listnáms- og hönnnunarbrautar VMA og…
Guðmundur Tawan Víðisson útskrifaðist vorið 2024 af textílsviði listnáms- og hönnnunarbrautar VMA og er nú að ljúka fyrsta ári sínu í fatahönnunarnámi við Listaháskólann. Mynd: Sindri Swan.

Þegar Akureyringurinn Guðmundur Tawan Víðisson hóf nám í framhaldsskóla haustið 2018 sá hann ekki fyrir sér að starfa sem fatahönnuður í framtíðinni. En eins og oft vill verða taka hlutir óvæntum breytingum og það átti sannarlega við um Guðmund. Hann var fyrstu rúmlega tvö framhaldsskólaárin á náttúrfræðibraut í MA en ákvað á þriðja ári að breyta til og færði sig upp á Eyrarlandsholtið í VMA. Þar varð á vegi hans textíllína listnáms- og hönnunarbrautar og þar með var teningnum kastað. Hann segist ekki hafa haft fatahönnun í huga í byrjun en hann hafi sjálfur haft gaman af að klæðast fallegum og öðruvísi fötum. Eftir því sem hann kynntist náminu betur jókst áhuginn á hönnun og hann minnist nemendaheimsóknar á Iðnaðarsafnið á Akureyri þar sem við blasti fatnaður af ýmsum toga sem framleiddur hafði verið á Sambandsverksmiðjunum á Akureyri. Guðmundur sagði að á þessu augnabliki hafi áhugi hans vaknað fyrir alvöru á viðfangsefninu og hann hafi farið að kynna sér betur sögu hönnunar og fatagerðar á Akureyri og raunar um allt land. Þetta sé heillandi grúsk sem sé auðvelt að gleyma sér í.

Guðmundur brautskráðist sem stúdent frá VMA fyrir tveimur árum, vorið 2024. Útskriftarverkefni hans var tískusýning sem hann kallaði Gullöldina. Þar horfði hann til sögu ullariðnaðar og fatagerðar á Akureyri á 20. öld. Á sumardaginn fyrsta í fyrra, á árlegri Vorkomu Akureyrarbæjar, var hann útnefndur sumarlistamaður Akureyrarbæjar 2025 og punkturinn yfir i-ið í vinnu hans sem sumarlistamaður var tískusýning í Menningarhúsinu Hofi sem hann kallaði Dýrð í Fagraskógi. Á þeirri sýningu var Guðmundur undir sterkum áhrifum frá Davíð Stefánssyni skáldi frá Fagraskógi og náttúruþjóðsögum Jóns Árnasonar.

Hér er viðtal við Guðmund Tawan á vefmiðlinum Akureyri.net í tengslum við vinnu hans sem Sumarlistamaður Akureyrar 2025.

Fyrsta árinu af þremur í fatahönnun í Listaháskólanum lýkur Guðmundur í maí. Hann segir námið hafa verið heillandi og gefið sér mikið, hann hafi lært helling af nýjum hlutum. Hann telji sig hafa haft góðan grunn fyrir námið.

„Núna er ég á lokasprettinum á fyrsta ári. Sem stendur er ég í tveimur áföngum, annars vegar jakkaáfanga og hins vegar í tískusögu, sem er mjög áhugaverð. Námið krefst mikillar sjálfstæðrar vinnu nemenda og við komumst ekki upp með að sitja auðum höndum, ég þarf alltaf að vera vel undirbúinn fyrir tíma og koma með eitthvað nýtt að borðinu. Ég er bæði að vinna í skólanum og heima. Saumaaðstaðan er í skólanum en hugmyndavinnuna tek ég meira heima eða á bókasafni skólans. Þetta er hönnunarnám, að útfæra hugmyndir. Auðvitað er betra ef maður getur saumað sjálfur og útfært þannig hugmyndirnar og það hef ég tileinkað mér. Það er líka mikilvægt að tengja hugmyndirnar við söguna. Á haustönninni vann ég tvö lokaverkefni og núna á vorönn önnur tvö lokaverkefni. Núna er ég að vinna að hönnun og þróun á jakka, sem ég hef ásamt öðrum verkefnum, unnið að í um eitt ár. Útfærsla mín á jakkanum tekur mið af sögu ullariðnaðarins á Ísland, á Sambandsverksmiðjunum á Akureyri, Álafossi í Mosfellsbæ og víðar. Ég hef í þessu skyni verið að grandskoða sögu fatagerðar á Íslandi á 20. öld, einkum þó það sem lýtur að ullarverksmiðjunum. Jakkinn sem ég er að vinna með er ullarprjónaður með leðurkrögum og -vösum. Varmi, sem áður hét Glófi og var á Akureyri, mun prjóna fyrir mig voð sem ég mun síðan sauma út frá og færa jakkann til nútímans. Það verður því í mörg horn að líta á næstu dögum og vikum svo ég geti lokið við hann fyrir annarlok. Verkefnið þarf ég að kynna sem uppsetningu, ég þarf að búa hana til og kynna fyrir kennurunum og öðrum sem vilja skoða. Þetta er vissulega afmarkað skólaverkefni en ég mun halda áfram að vinna með það í sumar og í framtíðinni undir minni línu sem ég kalla Þúsund þakkir. Tískusýningar heilla mig en auðvitað þarf ég líka að selja flíkur til þess að fjármagna það sem ég er að gera. Sumarvinnan mín verður hérna fyrir sunnan í Vogue fyrir heimilið. Þar þekki ég ágætlega til enda hef ég unnið hjá sama fyrirtæki á Akureyri,“ segir Guðmundur Tawan.