Erasmus+ vika í VMA
Þessi vika er Erasmus+ vika í VMA. Kynnt verða ýmis Evrópuverkefni sem nemendur og kennarar í VMA hafa unnið að og einnig verður farið yfir þá möguleika sem bjóðast í þessu samstarfi. Alla daga í þessari viku verða í löngu frímínútunum stuttar kynningar á Evrópuverkefnum sem VMA hefur tekið þátt í.
Það er óhætt að segja að ummfang Erasmus+ verkefna í VMA er umtalsvert. Til marks um það fór á síðasta ári til Evrópulanda 131 þátttakandi frá VMA í hin ýmsu verkefni – bæði nemendur og kennarar. Þessar ferðir hafa víkkað út sjóndeildarhring nemenda og kennara og gefið ómetanleg tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum, kynnast nýju fólki og spegla skólastarfið í VMA við skóla í Evrópu.
Það má í raun segja að alltaf séu einhver verkefni í gangi. Frá VMA fara nemendur og kennarar til Evrópulanda og taka þátt í verkefnum – sem í sumum tilfellum nokkrir skólar í jafn mörgum löndum taka þátt í. Og að sama skapi koma í VMA nemendahópar og kennarar í svokallaða starfaspeglun, þar sem þeir fá innsýn í kennsluna í VMA og kynnast öðrum hlutum á Akureyri og nágrenni sem eru á þeirra áhuga- og fræðasviði.
Í síðustu viku voru fjórir nemendur og þrír kennarar á rafdeild VMA í Roermond í Hollandi og tóku þar þátt í Green (Green Revolution Environmental Ecucation Nurturing) Erasmus-verkefninu, sem vísar til grænnar orku. Í þessu verkefni taka þátt, auk VMA og hollenska skólans, skólar í Tyrklandi, Portúgal og Króatíu. Verkefnið hófst í maí sl. í VMA og þar var sjónum beint að endurnýtanlegri orku. Sem liður í því var unnið með sjálfbæru kennslustofuna í VMA sem rafdeild setti upp en eins og komið hefur fram fékk hún á dögunum tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna. Í öðrum hluta Green-verkefnisins í Hollandi í síðustu viku var unnið að því að hanna rafeindastýringu fyrir lóðréttan garð (e. Vertical Garden) sem verður settur upp í öllum skólum verkefnisins.
Þessi vika verður viðburðarík í Evrópusamstarfinu því þrettán nemendur af íþrótta- og lýðheilsubraut VMA og þrír kennarar heimsækja framhaldsskóla í Lillehammer í Noregi og sex kennarar frá Belgíu og Slóveníu verða í VMA.
Rétt er að vekja athygli á því að auk fjölbreyttra verkefna og nemenda- og kennaraheimsókna veitast ýmis Erasmus+ tækifæri fyrir ungt fólk utan skólans. Þetta mun Miriam Petra frá Rannís kynna í stofu M01 kl. 12:50-13:30 nk. miðvikudag, 14. október. Meðal þess sem Miriam mun vekja athygli á eru sjálfboðaliðastörf og fjölbreytt verkefni sem ungt fólk á Íslandi getur tekið þátt í, að ógleymdum Interrail lestarpassanum sem ungu fólki að 27 ára aldri gefst kostur á að kaupa með fjórðungs afslætti til þess að ferðast með lestum í 33 löndum Evrópu.