Draumar geta ræst!
Draumar geta sannarlega ræst! Fyrr á þessu ári, nánar tiltekið 9. febrúar sl., sagði Neó Týr Hauks, sem brautskráðist síðastliðið vor af listnáms- og hönnunarbraut VMA, í viðtali hér á heimasíðunni að hán hefði áhuga á dansnámi utan landssteinanna. Og það er að raungerast því Neó Týr hefur ásamt tveimur öðrum úr Dansskóla Steps - Steps Dancecenter Akureyri, Kormáki Rögnvaldssyni, sem einnig var í VMA, útskrifaðist vorið 2023 af hársnyrtibraut, og Lonu Sophiu Dís G. Kauenhowen, sem lauk námi frá MA sl. vor, fengið skólavist á komandi vetri í Balletakademíunni í Stokkhólmi. Neó og Lona eru á Contemporary-braut, sem er í raun nútímadans, en Kormákur er á svokallaðri jazz-námsbraut við skólann. Námið hófst 17. ágúst sl.
Á námstíma sínum í VMA lögðu Neó Týr og Kormákur lóð sín á vogarskálarnar í félagslífinu í skólanum til hliðar við sitt daglega nám, auk þess að dansa í Steps.
Í sumar, nánar tiltekið 8.-18. júlí sl., fór Steps með 23 dansara á Dance World Cup í Dublin á Írlandi og stóðu þeir sig með miklum glæsibrag. Kormákur keppti í Senior Solo Jazz með atriðið Just Relax og varð í 8. sæti í sínum flokki, Neó Týr keppti í Senior Solo Contemporary og varð í 11. sæti og Lona keppti í Senior Solo Contemporary og hafnaði í 18. sæti.
Í apríl sl. fóru Kormákur og Neó Týr til Stokkhólms í inntökupróf í Balletakademíuna sem gekk það vel að nokkrum dögum síðar lá fyrir að skólavistin var tryggð. Sem fyrr segir hófst skólinn 17. ágúst sl. og segir Kormákur að þeim lítist öllum mjög vel á skólann og námið, framundan sé sannarlega spennandi vetur. Akureyringarnir þrír leigja saman íbúð í Farsta, úthverfi Stokkhólms, og að morgni dags er farið með neðanjarðarlestinni í skólann í miðborg Stokkhólms.
„Okkur líst mjög vel á þetta. Þetta er vissulega stíft nám, við dönsum að jafnaði fjóra til sex tíma á dag og því þurfum við að vera í góðu líkamlegu formi. Skólinn er frá klukkan níu á morgnana til hálf fimm á daginn. Hver kennslustund er hálfur annar tími og korter á milli kennslustunda. Hádegismatur er í klukkutíma. Tvo daga í viku er ég líka í kvöldtímum.
Við erum í eins árs námi en skólinn býður líka upp á þriggja ára dansnám og raunar er ágæt vinkona mín frá Akureyri, Helga Sólveig Tulinius, á öðru ári í því námi. Það verður bara að koma í ljós hvert þessi vetur leiðir mig í dansinum, fyrir mig persónulega vil ég sjá hvort dansinn gæti mögulega orðið meira en áhugamál.
Þetta er mjög virtur skóli sem í eru um 160 nemendur. Flestir þeirra eru Svíar en stærstur hluti nemenda utan Svíþjóðar kemur frá hinum Norðurlöndunum,“ segir Kormákur. Hann endurnýjar nú kynnin við Svíþjóð og Svía því hann starfaði um tíma á Erasmus styrk á hársnyrtistofu í Stokkhólmi í tengslum við nám sitt í hársnyrtiiðn í VMA.