Alfa byggingalausnir gaf byggingadeild þakdúka
Á dögunum komu eigendur fyrirtækisins Alfa byggingalausna ehf. á Akureyri í heimsókn í byggingadeild VMA og færðu henni að gjöf nokkrar gerðir af þakdúk sem fyrirtækið selur. Þakdúkinn mun byggingadeild nota í hin ýmsu verkefni nemenda og í húsin sem nemendur á öðru ári í byggingadeild eru nú að byggja.
Helgi Valur Harðarson, brautarstjóri byggingadeildar, segir að þessi gjöf Alfa byggingalausna nýtist mjög vel. „Þetta skiptir okkur á byggingadeildinni miklu mál. Það er okkur mikilvægt að eiga samtal við fólkið í faginu, að fá að heyra af nýjungum og þróun í mannvirkjagerð. Og ekki er verra þegar menn taka sig til og skaffa okkur efni til að kenna nemendum og hreinlega styðja við námið. Öndunardúkar eru sífellt meira notaðir við smíði húsa í dag, þeir hjálpa til við að halda byggingarefninu þurru en eiga samt að anda út og ættu þar af leiðandi að auka líkur á betri endingu og jafnframt að minnka líkur á myglu og rakavandamálum. Meðvitund um aukna loftun og að byggingarefnin þurfi að anda er alltaf að aukast og það er vonandi að við getum séð við myglunni í nýjum byggingum, til mikils er að vinna í þeim efnum,“ segir Helgi Valur.
Fyrirtækið Alfa byggingalausnir á Akureyri var stofnað fyrr á þessu ári og að því standa þrír einstaklingar á Akureyri. Tveir þeirra, Sverrir Guðmundsson húsamiður og Guðmundur Bragason tæknifræðingur, eiga og reka fyrirtækið Þaksmiðjuna. Þriðja eigandinn er Steinar Bragi Laxdal, sem sér um daglega umsýslu Alfa byggingalausna. Um er að ræða byggingavöruverslun fyrir iðnaðarmenn, verktaka, fyrirtæki og einstaklinga. Til að byrja með er áhersla fyrirtækisins á vörur fyrir þök, útveggi, loftþéttingu, rakavörn og frágang.
Steinar Bragi þekkir vel til í VMA því hann var nemandi skólans 2019-2024. Til hliðar við námið í VMA var hann formaður Þórdunu nemendafélags tvö skólaár – 2022-2023 og 2023-2024. Sem fyrrverandi nemandi VMA tengist Steinar Bragi skólanum sterkum böndum og það gerir líka Sverrir Guðmundsson sem útskrifaðist sem húsasmiður úr kvöldskóla byggingadeild VMA vorið 2023.