Afar fjölbreytt lokaverkefni kynnt í dag
08.05.2026
Nemendur á stúdentsprófsbrautum kynntu lokaverkefni sín í dag. Það sama gerðu nemendur í vélstjórn og á sjúkraliðabraut.
Í dag var uppskerudagurinn mikli. Nemendur sem nú sjá fyrir endann á námi sínu í VMA kynntu lokaverkefni sín. Óhætt er að segja að verkefnin hafi verið afar fjölbreytt og metnaðarfull.
Um var að ræða kynningar lokaverkefna á stúdentsprófsbrautum, vélstjórnarbraut og sjúkraliðabraut.
Hér eru myndir sem voru teknar á kynningum á sjúkraliðabraut.
Hér eru myndir sem voru teknar á kynningum á vélstjórnarbraut.
Hér eru myndir sem voru teknar á kynningum á stúdentsprófsbrautum.