Fara í efni

Kynning á lokaverkefnum á stúdentsprófsbrautum

Nemendur í lokaverkefnisáfanga á stúdentsprófsbrautum í VMA bjóða til opins húss og kynningar á lokaverkefnum sínum föstudaginn 8. maí kl. 11:00-13:00. Að undanförnu hafa nemendur kynnt verkefni sín í kennslustundum en kynningarnar föstudaginn 8. maí verða með öðru sniði – annars vegar segja nemendur stuttlega frá verkefnunum kl. 11:20 og síðan verður hægt að kynna sér þau á veggspjöldum. Kynningarnar verða á ganginum við stofu M-01. Heitt verður á könnunni og eru öll velkomin.

Nemendur á hinum ýmsu stúdentsprófsbrautum sem kynna verkefni sín eru:

María Katrín Andradóttir og Anna Björg Elmarsdóttir – BRCA-gen og brjóstakrabbamein. Hlutverk erfðaskimunar og skurðaðgerða
Snæbjörn Ingi Þorbjörnsson og Mikael Máni Jónsson – Áhrif seinni heimsstyrjaldarinnar
Almar Andri Þorvaldsson og Úlfar Örn Guðbjargarson – Hrunið 2007 í Bandaríkjunum – áhrif þess á atvinnu, húsnæðismarkaðinn og banka
Ragnar Logi Björnsson og Úlfur Blöndal Sigurðsson – Skák – baráttan um sigurinn
Kristín Sigríður Jónsdóttir – Svefn
Kristófer Magni Magnússon – Hver eru áhrif orkudrykkja á svefn unglinga og ungs fólks?
Hildur Anna Birgisdóttir - Krossbandaslit í kvennaknattspyrnu
Rafael Stevenson Bros - Samskipti Íslands og Bandaríkjanna eftir seinni heimsstyrjöld
Rakel Hólmgeirsdóttir – Offita meðal ungmenna
Finnur Karl Jónsson – Áhrif reglulegrar styrktarþjálfunar á úthald í íþróttum
Gunnar Hólm Hjálmarsson – Mannslíkaminn og kasthreyfingin
Sævar Emil Ragnarsson – Riboflavin transporter deficiency (RTD)
Ester María Andreasdóttir og Karen Irani Þorgeirsdóttir – Markaðssetning rangra mataræðisráðlegginga
Árný Helga Birkisdóttir – Líffræðilegir þættir, þjálfun og kynjamunur í skíðagöngu
Kristján Breki Pétursson - Markmiðasetning í fótbolta –
Sigursteinn Ýmir Birgisson – Áhrif kreatíns á styrk, sprengikraft og endurheimt fótboltafólks
Jakub Biernat – Meiðsli í bardagaíþróttum: Hvað gerist, af hverju og hvernig má koma í veg fyrir þau?
Elías Már Víðisson – Áhrif 9/11 á öryggisstefnu Bandaríkjanna á flugvöllum. Hver voru áhrif á múslima?
Sigurbjörg Agla Hannesdóttir – Klaustur á Íslandi – hver er munurinn?
Hulda Þórey Halldórsdóttir - Reynsla nemenda af stjórnarsetu í nemendafélögum í framhaldsskóla - hlutverk, áskoranir og ávinningur
Ragnar Freyr Jónasson – NFL: Þróun og áhrif
Ásta Guðný Kristjánsdóttir – Kjarasamningar: Álitamál og túlkun
Sunna Rós Sigurjónsdóttir – Áhrif hreyfingar á einstaklinga 60 ára og eldri
Silja Jónína Úlfarsdóttir – Lestrarkennsla barna
Berghildur Ýr Axelsdóttir – Ósýnilegu risarnir