Fara í efni

Lokaverkefni vélstjórnarnema kynnt 8. maí

Föstudaginn 8. maí verða lokaverkefni þrettán vélstjórnarnema kynnt í Gryfjunni og hefjast kynningarnar kl. 13:30. Öll eru velkomin.

Hefð er fyrir því að á lokaönn vélstjórnarnámsins vinni nemendur heildstætt verkefni þar sem þeir kappkosta að nýta reynslu sína, þekkingu og færni sem þeir hafa aflað sér í hinum ýmsu þáttum í náminu.

Nemendurnir sem kynna verkefni sínu eru:

Arnór Freyr Fjólmundsson – Vél sett niður í bát og smíði á vökvaknúnum uppfærslugír
Aron Breki Norðfjörð/Víðir Guðjónsson – Þrívíddarhönnun á Pelton túrbínu. Skálar prentaðar í stál
Auðunn Elí Steinþórsson – Uppgerð á snjóplógi
Bryngeir Óli Viggósson – Uppgerð á dráttarvél
Guðmundur Páll Björnsson – Viðgerð á Kónbrjót
Hartmann Kristinn Guðmundsson – Uppgerð á vél í Dodge
Jörvi Blær Traustason – Virkjun í Hofsá í Svarfaðardal
Konráð Jónsson – Loftræsting í fjósi
Lárus Fannar Sigmundsson – Hönnun á gripkló
Sigurður F. Tryggvason Radtke – Niðursetning og uppfærsla á vél og skiptingu í Nissan Patrol
Stefán Hrafnkell Gunnlaugsson – Uppgerð á vél í seðlatætara
Ægir Diego Víðisson – Hönnun og smíði á kastvél