Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðherra og bæjarstjórans á Akureyri um viðbyggingu við VMA
Í dag undirrituðu Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri, fyrir hönd Akureyrarbæjar, viljayfirlýsingu um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám í VMA. Viljayfirlýsingin var með veglegra móti, á tréplötu sem var prentuð út í FabLab Akureyri. Viðstödd undirritunina voru fulltrúar mennta- og barnamálaráðuneytisins og Akureyrarbæjar og hluti starfsmanna VMA.
Hér eru fleiri myndir sem Hilmar Friðjónsson kennari tók af þessu tilefni.
Hinn 17. maí 2024 undirrituðu Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, annars vegar og sveitarfélögin Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Svalbarðsstrandarhreppur, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð hins vegar, samning um viðbyggingu fyrir verk- og starfsnám við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Í samningnum er gert ráð fyrir að Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) annist frumathugun, framkvæmd og eftirlit.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni í dag mun Akureyrarbær taka að sér hlutverk Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna og annast undirbúning og verkframkvæmdir vegna stækkunarinnar á grundvelli heimilda í 47. og 48. gr. laga um framhaldsskóla.
Í kjölfar viljayfirlýsingarinnar í dag verður unnið að gerð nýs samnings um undirbúning og byggingu hússins og er gert ráð fyrir að undirrita samninginn fyrri hluta októbermánaðar n.k. Að samningnum undirrituðum verður farið á fullt í alla undirbúningsvinnu og hönnun viðbyggingarinnar og bindur Benedikt Barðason skólameistari VMA vonir við að unnt verði að taka fyrstu skóflustunguna og hefja framkvæmdir á næsta ári. Skólinn hafi lengi búið við þröngan húsakost fyrir verknámsgreinar og því brýnt að bæta úr sem allra fyrst.
Inga Sæland sagði það mikið fagnaðarefni að hún væri nú að rita undir þessa viljayfirlýsingu með Berglindi Ósk bæjarstjóra. Ekki hefði hún getað látið sér detta í hug að þær tvær, þegar þær voru sessunautar á Alþingi fyrir nokkrum árum, yrðu í þessum sporum og leiddu þetta mál í sameiningu í lykta. Því bæri að fagna. Hún sagði að skólinn hafi lengi búið við þröngan kost í húsnæðismálum og sýnt ótrúlega þolinmæði og elju en með undirritun viljayfirlýsingarinnar í dag og endanlegum samningi í október væru úrbætur í augsýn.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri þakkaði gott samstarf og samtal við mennta- og barnamálaráðuneytið og ráðherra og sömuleiðis Benedikt skólameistara fyrir hönd Verkmenntaskólans:
Við ætlum að klára verkefnið hratt og örugglega með góðum samningi sem við ætlum okkur að undirrita í októbermánuði þannig að þetta verkefni muni örugglega fara af stað á þessu ári.
Við undirritun viljayfirlýsingarinnar í dag sagði Benedikt Barðason skólameistari m.a.:
Hlutverk framhaldsskóla er að undirbúa fólk undir ákveðin störf og frekara nám. En það gleymist í umræðunni að hlutverk hans er líka annað og miklu stærra og meira; þ.e.a.s. að efla siðferðisvitund og ábyrgðarkennd, víðsýni, frumkvæði, umburðarlyndi og síðast en ekki síst sjálfstraust. Að menn fari héðan út með kassann út. Hlutverk okkar hefur alltaf verið að hækka menntunarstig samfélagsins og tryggja grunnþjónustu við þá íbúa sem hér búa og um leið búsetuskilyrði og undirstöður velferðar á þessu svæði.
Eins og þið þekkið eru vegir opinberrar stjórnsýslu hlykkjóttir og því er það sérstakt gleðiefni að nú er verkefnið komið á beinan veg og það er farið að sjá á milli stika. Þessi skóli og þetta samfélag er mér mikið hjartans mál og er því eiginlega hálf hrærður þegar við erum núna að færast nær þessu lokamarkmiði. Ég tel betra að þessi framkvæmd sé í höndum okkar, þ.e.a.s. að verkefnið sé í heimabyggð og að sveitarfélögin og Akureyrarbær í þeirra forsvari annist þessa byggingu.
Í lok ávarp síns sagði Benedikt:
Það þarf kjark og það þarf hugrekki til að taka ákvarðanir og ég kann að meta það. Ég ætla að lokum að gera orð nemanda míns, Þórarins Karls, að mínum sem hann sagði fyrir hönd nýnema í húsasmíði sem færðu Skógræktarfélagi Eyfirðinga tvö útiborð að gjöf: Horfum fram á veginn, enginn bakkar hér út! Þess vegna segi ég; við klárum þetta verkefni og síðan göngum við frá verkefninu. Við bökkum ekki út úr því. Við klárum þetta verkefni, héðan bakkar enginn út. Til hamingju öllsömul!