Fara í efni

Upplýsingar um próf og próftöflur

Próftöflur nemenda má finna á nemendasvæði í Innu.

Próftöflu vorannar 2019 má finna hér (í dagaröð)

Próftöflu vorannar 2019 má finna hér (í stafrófsröð)

Sjúkrapróf vorannar 2019 má finna hér 

ATH: Reglur um framvísun persónuskilríkja í prófum 

Frestun prófa:

Nemendum sem hafa erfiða próftöflu hafa möguleika á að sækja um frestun á einu prófi til sjúkraprófa. Ekki er þó hægt að fresta verklegum prófum. Þessi frestun hefur engin áhrif á rétt nemandans til sjúkraprófa í öðrum greinum. Nemendur geta sótt um frestun prófa vikuna 6.maí - 10.maí.  Kostnaður við þessi aukapróf er 1000 kr. og greiðist við skráningu.

Sjúkrapróf verða þriðjudaginn 21.maí og miðvikudaginn 22.maí.

Próftafla sjúkraprófa verður birt á auglýsingatöflu í norðuranddyri og á heimasíðu skólans.

Sýnidagur námsmats verður fimmtudaginn 23.maí kl.11-13.

Próf tekin annars staðar:

Hægt verður að sækja um að taka próf annars staðar en það á einungis við um próf sem eru á 6. prófdegi (20.maí).  Nemendur geta sótt um þetta vikuna 6.maí - 10.maí. Kostnaður við þessi aukapróf er 5000 kr. og greiðist við skráningu. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans.

 

Mikilvæg atriði varðandi próf:

  • Ekki er krafist læknisvottorðs vegna veikinda (nema veikindi vari lengur en tvo daga).

  • Nemendur þurfa að sýna persónuskilríki með mynd í prófi.

  • Ekki er lengur skráður lengri próftími sérstaklega hjá hverjum nemanda.

  • Öll próf fara fram í stofum skólans við Hringteig.

  • Stofuskipan í prófunum verður birt á auglýsingatöflum í norðuranddyri skólans a.m.k. 20 mínútum fyrir auglýstan próftíma.

  • Einkunnir verða birtar í Innu.

  • Upplýsingar um einkunnir eru ekki veittar í gegnum síma.

  • Nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega í prófin.

 

Prófareglur: 

  1. Ef nemandi er veikur þegar lokapróf fer fram skal hann tilkynna það skrifstofu VMA að morgni prófdags ella hefur hann fyrirgert rétti sínum til sjúkraprófs. Skráning í sjúkrapróf fer fram á skrifstofu skólans um leið og veikindi eru tilkynnt með GÁT-060 Skráning í sjúkrapróf.

  2. Nemendum ber að leggja persónuskilríki með mynd á borð eða vinnustöð í upphafi prófs. Ef nemandi hefur ekki persónuskilríki með sér er heimilt að leita til prófhafa til staðfestingar um að nemandi sé skráður í áfanga. Ef ekki er hægt að staðfesta hver nemandi er, skal prófstjóri ákvarða hvernig tekið er á málinu.

  3. Próftími kemur fram á forsíðu prófs. Nemendur hafa heimild til að sitja 30 mínútum lengur en próftími segir til um.

  4. Nemendum ber að sitja hið minnsta 45 mínútur við verkefni sitt í hverju prófi. Komi nemandi meira en 45 mínútum of seint til prófs, hefur hann glatað rétti sínum til að þreyta prófið.

  5. Öll meðferð snjalltækja er stranglega bönnuð á prófstað.

  6. Ef vafi leikur á próftökurétti nemanda, t.d. vegna fjarvista eða hann hefur ekki lokið tilskyldum verkefnum, skal nemandinn ganga úr skugga um rétt sinn hjá sviðsstjóra sínum fyrir prófið.

  7. Nemanda er ekki heimilt að fara án eftirlits úr prófstofu og koma aftur inn og ljúka við að leysa prófið.

  8. Meðferð matar og drykkjar er að öllu jöfnu óheimil í prófstofu.

  9. Alger þögn skal ríkja í prófstofu. Ef nemandi þarfnast aðstoðar, skal hann rétta upp hönd. Nemandi má ekki þiggja eða veita öðrum próftökum aðstoð meðan á prófi stendur.

  10. Einungis hjálpargögn sem tilgreind eru á forsíðu prófa eru leyfileg.

  11. Nemanda er ekki heimilt að hefja próftöku fyrr en yfirsetukennari hefur gefið merki um slíkt.

  12. Grunað prófsvindl er tilkynnt til prófstjóra sem metur alvarleika hvers tilviks og hver viðbrögð skulu vera. Prófsvindl þýðir að jafnaði fall í áfanga eða brottrekstur úr skóla.