Fara í efni

Þekking í skyndihjálp er öllum nauðsynleg!

Skyndihjálparfólk ársins tekur við viðurkenningum sínum á Glerártorgi sl. sunnudag. Mynd: Ásta Flosa…
Skyndihjálparfólk ársins tekur við viðurkenningum sínum á Glerártorgi sl. sunnudag. Mynd: Ásta Flosadóttir.

Öll erum við reglulega minnt á hversu mikilvægt það er að kunna grunnatriðin í skyndihjálp. Slys eða óvænt veikindi gera ekki boð á undan sér og allir geta lent í þeim aðstæðum að þurfa að bregðast hratt við. Nauðsynlegt er að hafa lært grunnatriðin í skyndihjálp til þess að vita hvernig eigi að bregðast við.

Eins og hefur verið auglýst hér á heimasíðunni verða tvö skyndihjálparnámskeið í VMA í mars og apríl. Nú þegar er orðið fullbókað á fyrra námskeiði 16.-18. mars nk. og síðara námskeiðið verður 20.-22. apríl nk. Nemendur á sjúkraliðabraut, íþrótta- og lýðheilsubraut og öllum verknámsbrautum verða að hafa lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp til að geta útskrifast. Nánar um þetta hér.

Það má með sanni segja að skyndihjálp og rétt og skjót viðbrögð standi VMA nálægt því um helgina voru feðginin Hinrik Hauksson og Kristín Andrea Hinriksdóttir útnefnd skyndihjálparfólk ársins 2025 en þau veittu Bríeti Kolbrúnu, dóttur Hinriks og systur Kristínar Andreu, fyrstu hjálp eftir hjartastopp. Sjá nánar hér.
Hinrik og Kristín Andrea fengu viðurkenningaskjöl sín afhent á Glerártorgi á Akureyri sl. sunnudag.

Bríet Kolbrún og Hinrik faðir hennar eru bæði nemendur í VMA og Kristín Andrea hefur líka verið í námi í VMA.