SKYN2EÁ01 - SKYNDIHJÁLP
05.02.2026
Nemendur sem eru fædd 2008 eða fyrr athugið.
Skyndihjálp verður kennt sem tólf tíma námskeið í stofu M01.
Fyrra skyndihjálparnámskeiðið 16. - 18. mars er orðið fullbókað en enn eru nokkur laus pláss í hópi II. Útskriftarefnum á sjúkraliðabraut, íþrótta- og lýðheilsubraut og verknámsbrautum er bent á að þau þurfa áfangann SKYN2EÁ01 til að geta útskrifast.
Skyndihjálparnámskeið II:
mánudaginn 20. apríl – 16:30 – 20:30
þriðjudaginn 21. apríl – 16:30 – 20:30
miðvikudaginn 22. apríl – 16:30 – 20:30
- Ef þú hefur áhuga þarftu að skrá þig með því að senda fullt nafn, kennitölu og hvort þú vilt námskeið I eða II á netfangið vma@vma.is.
- Jafnvel þótt þú sért með skráningu í Innu í SKYN2EÁ01 verður þú að senda tölvupóst.
- Ef þú hefur frekari spurningar þá hafðu samband við skrifstofu skólans.
- Nemendur á verknámsbrautum, íþrótta- og lýðheilsubraut og sjúkraliðanámi þurfa að taka námskeiðið til að geta útskrifast.