Fara í efni

Sýnir á heimavelli á ný

Úlfur Logason myndlistarmaður. Hann tók grunnnám sitt í VMA fyrir um áratug en lærði síðar í Düsseld…
Úlfur Logason myndlistarmaður. Hann tók grunnnám sitt í VMA fyrir um áratug en lærði síðar í Düsseldorf í Þýskalandi og býr nú og starfar í Berlín þar í landi. Mynd: Listasafnið á Akureyri.

Þessa dagana stendur yfir á Listasafninu á Akureyri sýning Úlfs Logasonar (f. 1997) myndlistarmanns sem hann kallar Guð launi þér/May God reward you. Á sýningunni kannar Úlfur evrópska listasögu með sínum aðferðum og augum og notar hana til að túlka eigið umhverfi og samtímann. Titill sýningarinnar vísar til teikningar Francisco Goya þar sem sjá má naut stanga götusöngvara. Þetta verk er einn af útgangspunktum sýningarinnar. Vatnslitamyndir Úlfs á sýningunni eru tilraun hans til að sameina fjölbreyttar frásagnir úr ýmsum áttum í einn myndheim.

Gaman er að rifja upp að Úlfur var á sínum tíma nemandi á listnáms- og hönnunarbraut VMA. Síðar lærði hann málaralist í Kúnstakademíunni í Düsseldorf í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan fyrir tveimur árum. Hann býr nú og starfar í Berlín í Þýskalandi.
Sýningin á Listasafninu á Akureyri er fyrsta sýning Úlfs á opinberu safni en hann hefur sýnt verk sín hér á landi, í Düsseldorf, París og New York.

Fyrstu einkasýninguna sína opnaði Úlfur í Kartöflugeymslunni 18. maí 2014, þegar hann var að ljúka fyrsta árinu á listnáms- og hönnunarbraut VMA.

Í febrúar 2015 var greint frá því hér á vef VMA að Margrét Steinunn Benediktsdóttir og Úlfur Logason hafi verið valin af sérstakri valnefnd á vegum Oddfellowreglunnar til þess að fara í boði hennar til Bandaríkjanna og Kanada sumarið 2015 og m.a. myndu þau kynna sér starfsemi Sameinuðu þjóðanna í New York.

Önnur einkasýning Úlfs var opnuð 16. maí 2015 í Kaktus á Akureyri og í aðdraganda þeirrar sýningar var Úlfur í viðtali í Landanum á Rúv.