Sturtuhausinn nk. fimmtudagskvöld - miðasala hafin
06.11.2026
Sturtuhausinn, hin árlega söngkeppni VMA, verður haldin í Gryfjunni í VMA nk. fimmtudagskvöld, 12. nóvember, kl. 20. Húsið verður opnað kl. 19.30. Miðasala er hafin á Glaze og einnig verða miðar seldir við innganginn. Miðaverð er kr. 3000
Hægt er að kaupa miða hér.
Að þessu sinni verða tíu keppendur í Sturtuhausnum.
Í hljómsveit kvöldsins verða: Benóní Meldal Kristjánsson (trommur), Arnar Franz Hauksson (gítar), Emil Andri Davíðsson (bassi) og Örn Heiðar Lárusson (hljómborð).
Dómarar kvöldsins verða Ágúst Brynjarsson, Anna Skagfjörð og Rúnar Eff.
Síðasti Sturtuhaus var haldinn í Sjallanum í janúar sl. Tímasetning hans var undantekning frá reglunni, áður hafði hann verið haldinn til fjölda ára á haustönn – eins og núna.