Sturtuhausinn í kvöld
Sturtuhausinn – söngkeppni VMA verður haldinn í kvöld, fimmtudag, kl. 20 í Gryfjunni í VMA. Húsið verður opnað kl. 19.30. Miðasala er á Glaze og einnig verða miðar seldir við innganginn. Miðaverð er kr. 3000
Hægt er að kaupa miða hér.
Átta lög verða flutt að þessu sinni í Sturtuhausnum. Flytjendur eru:
Árvök Elín Ragnarsdóttir Snædal – The Crippled Lyon (Michael Nesmith and the first National Band)
Embla Sól Allport – Shallow (Lady Gaga og Bradley Cooper)
Jóhanna Celina Jakobs – Ég á líf (Eyþór Ingi Gunnlaugsson)
Ólafur Árni Haraldssson – My way (Frank Sinatra)
Sigrún Dalrós Eiríksdóttir – Life goes on (The Sundays)
Sólveig María Svava Haraldsdóttir og Hildur Ósk Gunnarsdóttir – Linger (The Cranberries)
Þórarinn Böðvarsson – Líttu sérhvert sólarlag (Sigríður Thorlacius og Valdimar Guðmundsson)
Hildur Ósk Gunnarsdóttir - Valerie - Amy Winehouse
Auk sjálfrar keppninnar verður, venju samkvæmt, sigurlagið í keppninni á síðasta skólaári flutt. Keppnin var haldin í Sjallanum í janúar sl.
Dómarar kvöldsins verða Ágúst Brynjarsson, Anna Skagfjörð og Rúnar Eff.