Fara í efni

Smíðuðu kerrur og eldstæði - kerrurnar til sölu!

Nemendur átta með Kristjáni Kristinssyni kennara.
Nemendur átta með Kristjáni Kristinssyni kennara.

Það er orðinn fastur liður að nemendur á síðustu önn í blikk- og stálsmíði smíði í sameiningu voldugar kerrur. Svo er einnig nú. Tveir nemendur í blikksmíði og sex í stálsmíði eru nú á lokametrunum í námi sínu í VMA og punktinn yfir i-ið hafa þeir sett með smíði á tveimur kerrum og einnig hefur hver nemandi smíðað eldstæði sem nýtist til dæmis til þess að grilla.

Nám í blikk-/stálsmíði er blanda verklegrar og bóklegrar kennslu og tekur námið sex annir - að einni starfsönn meðtaldri - eins og hér má sjá. Nemendur þurfa að ljúka starfstíma undir handleiðslu meistara áður en þeir fara í sveinspróf. Umræddir átta nemendur útskrifast úr námi sínu frá VMA 26. maí nk.

Nú hafa nemendurnir átta lokið við smíðagripi sína og því var efnt til myndatöku í vikunni. Hér hefur heldur betur verið vandað til verka og sannarlega eru kerrurnar rammgerðar og sterkar og eldstæðin voldug. 

Kerrurnar, sem eru 3 x 1,5 m að stærð með 750 kg burðargetu, eru nú boðnar til sölu og veita allar upplýsingar Hörður Óskarsson brautarstjóri málmiðnbrautar VMA (hordur.oskarsson@vma.is) og Kristján Kristinsson kennari (kristjan.th.kristinsson@vma.is).