Fara í efni

Sendinefnd ArcticSkills í VMA

Frá vinstri: Dagný Hulda, .... .... ...., Benedikt, Ásta Fönn, Halla, Unnur Ása og .... .
Frá vinstri: Dagný Hulda, .... .... ...., Benedikt, Ásta Fönn, Halla, Unnur Ása og .... .

Í síðustu viku voru í VMA fjórir fulltrúar ArcticSkills iðn- og verkgreinakeppninnar sem hefur verið haldin síðan 2016. Þessi keppni á sér fyrirmynd í WorldSkills og EuroSkills iðn- og verkgreinakeppnunum og tekur til norðurhéraða Skandinavíu og einnig hefur Grænland nýverið komið inn í  samstarfið. Ísland hefur ekki verið aðili að þessu samstarfi en hinir norrænu gestir, þrír frá Noregi og einn frá Finnlandi, kynntu fyrir kennurum og forráðamönnum VMA keppnina og möguleika á því að Ísland taki þátt í þessu samstarfi.

Í upphafi tóku þátt í ArcticSkills skólar í Finnmörku í Noregi, Lapplandi í Finnlandi og Múrmansk í Rússlandi. Síðar komu norðurhéruð Svíþjóðar og Grænland inn í samstarfið en Múrmansk datt út.

Eins og í WorldSkills og EuroSkills er markmiðið það sama með ArcticSkills, að efla og styrkja ímynd iðn- og verknáms, hvetja ungt fólk til verkmenntunar og stuðla að samstarfi skóla og atvinnulífs á norðurslóðum. Síðasta ArcticSkills var haldin í mars sl. í Kirkenes í Finnmörku í Noregi og næsta vor verður keppnin haldin í Lapplandi.

Nemendur í VMA hafa á undanförnum árum tekið þátt í Mín framtíð – Íslandsmóti iðn- og verkgreina og verður næsta slíka keppni haldin snemma á næsta ári. Næsta haust verður síðan næsta EuroSkills keppni haldin í Düsseldorf í Þýskalandi. VMA hefur átt verðuga fulltrúa á EuroSkills.

Fram kom hjá fulltrúum ArcticSkills að vilji er til þess að fá Íslendinga til þátttöku í þessu samstarfi og er vel mögulegt að sem fyrsta skref verði fulltrúar Íslands á ArcticSkills í Lapplandi næsta vor til þess að kynna sér samstarfið betur og þessa árlegu keppni iðn- og verkgreina.

Í sendinefnd ArcticSkills voru …… frá Finnmörku í Noregi og ….. frá Lapplandi í Finnlandi. Sem fyrr segir kynntu þau ArcticSkills fyrir verknámskennurum í VMA og einnig áttu þau fund með Bendikt Bragasyni skólameistara, Ástu F. Flosadóttur aðstoðarskólameistara, Unni Ásu Atladóttur sviðsstjóra iðn- og starfsnáms, Dagnýju Huldu Valbergsdóttur, sem heldur utan um erlend samskipti í VMA, og Höllu Hafbergsdóttur, gæða- og verkefnastjóra.