Fara í efni

Próftafla haustannar 2020

Nemendur athugið að próftafla haustannar 2020 hefur verið birt á Innu og er einnig aðgengileg hér á heimasíðu skólans.

ATH: engin lokapróf verða haldin í VMA (á staðnum). Nánari upplýsingar varðandi prófhald veita kennarar viðkomandi áfanga.

Próftafla haustannar 2020 í dagskóla

Próftafla haustannar 2020 í fjarnámi 

Varðandi sjúkrapróf

Nemendur tilkynna veikindi á skrifstofu skólans og til viðkomandi kennara. 

Áfangastjórar og kennari finna tíma fyrir sjúkrapróf nemandans sem fara fram í síðasta lagi 17. desember.