Með mörg járn í eldinum
Svo mikið er víst að Heimir Sigurpáll Árnason húsasmíðanemi er með mörg járn í eldinum og hann segist helst alltaf þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni. Hann hóf nám í byggingadeildinni í VMA haustið 2023 og á nú eina önn eftir til þess að ljúka húsasmíðanáminu fyrir sveinspróf.
Heimir er Norður-Þingeyingur, fæddur og uppalinn í Sveinungsvík í Langanesbyggð. Þar er faðir hans með stórt sauðfjárbú. Heimir segir að Sveinungsvík sé frá náttúrunnar hendi mjög góð sauðfjárræktarjörð og hún hafi verið í eigu sömu ættarinnar í hundrað og þrjátíu ár. Hann segir rætur sínar í Sveinungsvík afar sterkar en tengsl hans við Hrísey, þar sem móðir hans býr, séu líka sterk.
Hann rifjar upp að ungur að árum hafi hann lært á harmonikku hjá Einari Guðmundssyni afabróður sínum og þá kunnáttu hafi hann nýtt sér frá átta ára aldri. Hann lagði oft leið sína með nikkuna í veiðihúsið við laxveiðiána Ormarsá og spilaði fyrir veiðimennina og fékk greitt fyrir með laxi sem þeir höfðu veitt í ánni. Fiskinn seldi hann svo ferðamönnum á Raufarhöfn. Segja má að þetta hafi kveikt ákveðinn viðskiptaneista hjá Heimi sem hefur vaxið og dafnað síðan. Hann hefur fylgst vel með rekstri Búvís á Akureyri, sem afi hans, Gunnar Guðmundarson og bróðir hans, áðurnefndur Einar Guðmundsson, settu á stofn árið 2006 og hafa æ síðan rekið af myndarskap. Fyrirtækið hefur frá upphafi sérhæft sig í sölu og þjónustu búvéla og rekstaravara til bænda og einnig hefur það á boðstólum vörur fyrir aðra viðskiptahópa.
Til hliðar við námið í VMA er Heimir fjárfestir og fylgist því vel með markaðnum. Hann á lóðir í Öxarfirði, skammt frá Ásbyrgi og hefur þar í hyggju að reisa nokkur frístundahús til þess að selja. Í sumar segist hann ætla að hefja byggingu fyrsta hússins af fimm eftir sömu teikningu og nemendur í byggingadeild VMA, Heimir þar á meðal, hafa áður byggt. Hann segist hafa áttað sig á því að einmitt þessi útfærsla á frístundahúsi hentaði mjög vel til þess að byggja og selja í Öxarfirði og því hafi hann samið við hönnuðinn um að fá að byggja eftir hans teikningu. Grunnurinn að fyrsta húsinu verði tekinn fljótlega og síðan hefjist hann handa, það verði því nóg að gera í byggingarvinnunni í sumar. Heimir segir enga tilviljun að hann hafi ákveðið að læra húsasmíðina, hún muni nýtast honum vel í byggingu frístundahúsanna í Öxarfirði og öðrum verkefnum í framtíðinni.
Tónlistin sem kviknaði með harmonikkuleiknum í veiðihúsinu við Ormarsá hefur þróast áfram og síðustu tvö ár hefur Heimir komið fram sem trúbador og syngur og spilar á gítar og munnhörpu.
Sem fyrr segir á Heimir eftir eina önn til þess að ljúka náminu í húsasmíði. Á þessari önn er hann í einum valáfanga, sem er frumkvöðlafræði á viðskipta- og hagfræðibraut. Eins og kom fram í frétt hér á heimasíðunni sl. mánudag var Heimir einn af nemendunum sem stóðu að baki hugmyndinni EKKI GOOGLA, sem er skemmtilegt og vel heppnað borðspil. Hann segist hafa farið í þennan áfanga fyrst og fremst til þess að læra markaðsfræði en í ljós hafi komið að hann hafi boðið upp á miklu meira en markaðsfræðina, undirbúningur og þátttaka í frumkvöðlakeppninni hafi verið mjög góð og jákvæð reynsla.
Árið 2021 lagði Kristján Már Unnarsson fréttamaður á Stöð 2 leið sína í Sveinungsvík og heimsótti þá feðga Árna Gunnarsson og Heimi Sigurpál. Í innslagi Kristjáns Más kemur skýrt fram að Heimir sjái sig sem bónda í Sveinungsvík og sjái þannig til þess að jörðin verði áfram í eigu sömu ættar. Núna fimm árum síðar segir Heimir að þessi áform hans hafi ekki breyst.