Fara í efni

Hæst á sveinsprófi í hársnyrtiiðn

Ása Lind Aradóttir með samnemendum sínum í hársnyrtiiðn í VMA. Þær útskrifuðust frá VMA í desember 2…
Ása Lind Aradóttir með samnemendum sínum í hársnyrtiiðn í VMA. Þær útskrifuðust frá VMA í desember 2024 og tóku sveinspróf í hársnyrtiiðn í vetur. Frá vinstri Anastazja Dyrlaga, Ása Lind, Sigrún Lilja Guðnadóttir og Stefanía Tara Þrastardóttir.

Ása Lind Aradóttir tók sveinspróf í hársnyrtiiðn í vetur og fékk hæstu einkunn í prófinu. Slíkt krefst mikillar yfirlegu og góðs undirbúnings því um samanlagðan árangur úr bæði bóklegu og fjölþættu verklegu prófi er að ræða. Ása Lind segist að sjálfsögðu vera himinlifandi yfir þessum árangri, hún hafi undirbúið sig vel fyrir prófið og viljað ná fram öllu því besta í því. Það hafi tekist.

Ása Lind var ein þeirra nýsveina sem tóku í síðustu viku við sveinsbréfum sínum við hátíðlega athöfn í Menningarhúsinu Hofi. Auk nýsveina í hársnyrtiiðn tóku við sveinsbréfum nýsveinar í húsasmíði, stálsmíði og vélvirkjun. Margir þeirra hafa stundað nám sitt við VMA. Dagur Orri Þorvaldsson og Heiðar Smári Haraldsson fengu einnig viðurkenningar fyrir að vera hæstir á sveinsprófi í stálsmíði. Báðir stunduðu þeir nám til lengri eða skemmri tíma í námi á málmiðnbraut VMA.

Ása Lind er fædd og uppalin á Svalbarðseyri og þar býr hún í dag og starfar á hársnyrtistofunni Hárið 1908. Hún útskrifaðist frá VMA í desember 2024. Undir lok námsins fór hún með bekkjarsystkinum sínum og kennurunum Hildi Salínu Ævarsdóttur og Hörpu Birgisdóttur í náms- og kynningarferð til Malaga á Spáni. Áður, í mars 2023, tók Ása Lind þátt í Íslandsmóti iðn- og verkgreina fyrir hönd VMA.

Að brautskráningu frá VMA lokinni tók við vinna á Hárið 1908, sem Þóra Sigríður Torfadóttir og Heiðrún Beck hófu að reka í mars 2022.

Ég byrjaði strax í janúar 2025 að vinna í fullu starfi á Hárið 1908 með eigendunum, Þóru Sigríði og Heiðrúnu. Og til viðbótar starfar hjá okkur sem nemi, Tinna Mjöll, sem er einmitt að útskrifast frá VMA núna í maí. Stofan gengur mjög vel og við erum að fá viðskiptavini víða að, ekki bara frá Svalbarðsströnd og Akureyri, heldur einnig frá t.d. Grenivík, Þórshöfn og Egilsstöðum. Í aðdraganda sveinsprófsins fékk ég mjög góðan stuðning og kennslu frá meistaranum mínum, Þóru Sigríði, og einnig hjálpuðu kennararnir í VMA mér mikið. Ég er auðvitað með mjög góðan grunn úr námi mínu í VMA og síðan var markviss undirbúningur fyrir sveinsprófið, bæði bóklega og verklega hlutann. Ég vildi gera þetta vel og fá góða einkunn. Í verklega prófinu gerði ég mínar verklýsingar og síðan dæmdu dómararnir út frá þeim, hvort vinnan og útfærslan væri í samræmi við verklýsingarnar. Í verklega prófinu, sem skiptist í litun og klippingu dömu, herraklippingu, skeggsnyrtingu, permanent, blástur og greiðslu, vildi ég sýna fjölbreytta tækni til viðbótar við grunnþættina sem þurfa auðvitað líka að vera til staðar. Mig langaði til að gera eitthvað öðruvísi og það gekk upp. Það var mjög gaman að fá að vita að ég náði hæstu einkunn, ég þarf eiginlega að passa mig að vera ekki of montin! 
Mér finnst þetta mjög skemmtilegt starf. Auðvitað getum stundum verið erfitt að standa langa vinnudaga en starfið er fjölbreytt og býður upp á mikil samskipti og kynni við fjölda fólks sem maður myndi annars ekki ræða við og það er  mjög gefandi og skemmtilegt.