Fara í efni

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema

Kynningarfundur fyrir foreldra nýnema í VMA verður haldinn þriðjudaginn 3. september 2013 kl. 17 í Gryfjunni VMA, gengið inn að austan.

Á fundinum fá foreldrar og forráðamenn upplýsingar um nám barna sinna, hitta umsjónarkennara þeirra og fá upplýsingar um skólastarfið almennt. Jafnframt mun skólameistari óska eftir foreldrum til að starfa í foreldrafélagi VMA. Stjórnin heldur fundi 2-3 á önn og formaður foreldrafélags situr fundi skólanefndar sem fundar einu sinni í mánuði.

Skólameistari hefur sent út fréttabréf til foreldra með upplýsingum um skólastarfið í upphafi annar og fundaboði á kynningarfundinn. Sjáumst sem flest.

Skólameistari.