Fara í efni

Skólastjórnendur og kennarar frá þremur löndum heimsóttu VMA

Kennararnir frá Belgíu og Slóveníu ásamt Dagnýju Huldu Valbergsdóttur og Jóhannesi Árnasyni. Frá vin…
Kennararnir frá Belgíu og Slóveníu ásamt Dagnýju Huldu Valbergsdóttur og Jóhannesi Árnasyni. Frá vinstri: Dagný Hulda, Miguel, Pieter, Ellen, Nathalie, Hanne, Matjaž og Jóhannes.

Í síðustu viku var, eins og oft áður, gestkvæmt í VMA. Sex kennarar frá Belgíu og Slóveníu voru í skólanum og kynntu sér kennsluna á bæði bóklegum og verklegum námsbrautum og einnig var í skólanum íslenskur kennari sem starfar við verknámsskóla í Danmörku.

Erasmus+ samstarf VMA við skóla út um alla Evrópu birtist í ýmsum myndum. Frá VMA fara nemendur með kennurum í heimsóknir í skóla og einnig fara kennarar í skólaheimsóknir (svokallaða starfsspeglun) í Evrópu og á móti koma í VMA kennarar frá öðrum löndum, eins og í liðinni viku. Allar þessar heimsóknir hafa það að leiðarljósi að víkka út sjóndeildarhring nemenda og kennara, að kynna sér hvernig staðið er að kennslu í öðrum löndum og fá um leið innsýn í ólíka menningarheima. Allt er þetta til þess fallið að styrkja, þroska og efla.

Sem fyrr segir voru sjö kennarar sem starfa í þremur löndum í heimsókn í VMA í síðustu viku. Fimm þeirra komu frá Belgíu, annars vegar tveir frá skóla í Brussel og hins vegar þrír frá skóla í De Pinte. Sjötti kennarinn kom frá Slóveníu.

Hér má sjá þessa sex kennara. Lengst til vinstri er Miguel Detemmerman, skólastjóri í GO ! Erasmusatheneum De Pinte framhaldsskólanum í smábænum De Pinte í flæmskumælandi hluta Belgíu, um það bil 15 km frá Ghent, Pieter Vielfont skólastjóri GO!4TECH BRUSSEL, sem er raungreina- og verknámsskóli í Brussel, Ellen Pauwels alþjóðafulltrúi GO!4TECH BRUSSEL, Nathalie Hanssens þýsku- og flæmskukennari í GO! Erasmusatheneum De Pinte, Hanne tungumálakennari í sama skóla og loks Matjaž Dlouhy efnafræði- og stærðfræðikennari í Gimnazija Ledina framhaldsskólanum í Ljubljana í Slóveníu.

Hanne, Nathalie og Miguel frá DePinte voru í starfsspeglun í VMA og kynntu sér eitt og annað í skólastarfinu. Matjaz var sömuleiðis í starfsspeglun og kynnti sér stærðfræðikennsluna hjá Hilmari Friðjónssyni og einnig kynnti hann sér kynjafræðikennslu Snorra Björnssonar. Þá fékk innsýn í kennslu á verknámsbrautum skólans, bæði í hársnyrtiiðn og á byggingadeild. Pieter og Ellen frá Brussel voru í VMA sl. fimmtudag og föstudag, fyrst og fremst til að kynna sér möguleika á frekara samstarfi við VMA, m.a. með möguleika á nemendaskiptum í matvælagreinum.

Sjöundi kennarinn sem var í VMA í liðinni viku er íslenskur, Hjörtur Gíslason, sem starfar í verkmenntaskólanum U Nord í Hilleröd í Danmörku. Hann var með fyrirlestur og námskeið á rafiðnbraut en milli U Nord og VMA hafa skapast sterk tengsl og fór hópur nemenda og kennara af brautinni í heimsókn í U Nord í apríl sl.