Vel heppnuð ferð til Hilleröd í Danmörku
Fyrr í þessum mánuði heimsóttu ellefu nemendur, sem allir eru á lokasprettinum í námi sínu í rafiðngreinum í VMA, sambærilega námsbraut í verknámsskólanum U-Nord í Hillröd á Sjálandi í Danmörku. Með í för voru kennararnir Óskar Ingi Sigurðsson, Magni Magnússon og Gísli Örn Guðmundsson.
Um var að ræða ferð sem var styrkt af Erasmus+ menntaáætlun ESB. Aðdragandinn var ekki langur en Magni Magnússon segir að ferðin hafi gengið frábærlega vel og skilað miklu fyrir bæði nemendur og kennara.
VMA-hópurinn gisti á Kaupmannahafnarsvæðinu en fór síðan að morgni dags með lest í um 40 mínútur beint norður til Hilleröd, sem er á Norður-Sjálandi. Samgöngurnar voru því einfaldar og skilvirkar.
Magni segir að umræddur verknámsskóli í Hilleröd sé á margan hátt svipað byggður upp og VMA – með bæði verknámsbrautir og nám til stúdentsprófs og stærð hans sé ekki ósvipuð og VMA. Gaman hafi því verið fyrir bæði nemendur og kennara að bera námið hér saman við námið í Hilleröd. Í ljós hafi komið að það væri í mörgum atriðum líkt en áherslurnar eilítið mismunandi.
Ástæðan fyrir því að þessi skóli í Hilleröd varð fyrir valinu var fyrst og fremst að við rafiðnbrautina þar kennir Íslendingurinn Hjörtur Gíslason sem Óskar Ingi þekkir vel og hefur verið í góðu sambandi við síðan þeir námu saman forðum daga rafiðnfræði í gamla Iðnskólanum í Reykjavík. Hjörtur greiddi því götu VMA-hópsins í hvívetna og tók á móti hópnum.
VMA-hópurinn fékk góða innsýn í skólastarfið í U-Nord og tók síðan þátt í kennslustundum, sem að sjálfsögðu fóru fram á dönsku. Magni segir að dönskukunnáttan hafi verið okkar nemendum svolítill þröskuldur til að byrja með en fljótlega hafi þeir komist að raun um að danskan væri ekki eins stór þröskuldur eins og þeir hefðu ímyndað sér. Sumir nemendur hafi haft orð á því að líklega hefðu þeir betur lagt meiri áherslu á dönskuna í skólagöngu sinni í gegnum tíðina! Einnig voru unnin sameiginleg verkefni íslensku og dönsku nemendanna og þá var auðvitað líka gripið til enskunnar til að auðvelda samskiptin.
Magni segir að þegar á heildina sé litið hafi ferðin tekist afburða vel og nemendur eigi mikið hrós skilið fyrir þann áhuga og virkni sem þeir hafi sýnt. Slíkar ferðir séu bráðnauðsynlegar til þess að víkka út sjóndeildarhringinn og bera saman það sem gert sé í VMA og hvernig aðrir standi að málum. Magni vill koma á framfæri kæru þakklæti til allra sem gerðu kleift að fara í þessa ferð, sérstakar þakkir fái kennarar og nemendur rafbrautarinnar í U-Nord í Hilleröd fyrir frábærar móttökur.