Fara í efni

Í rafmagninu og blakinu

Fjórir strákar í KA spiluðu með U20 landsliðinu í Skotlandi 16.-18. okt. sl.  Ágúst Leó annar frá vi…
Fjórir strákar í KA spiluðu með U20 landsliðinu í Skotlandi 16.-18. okt. sl. Ágúst Leó annar frá vinstri. Á myndinni eru líka tvíburabræðurnir Sölvi (VMA - vélstjórn) og Svanur (VMA-rafdeild) Hafþórssynir og Hákon F. Arnarsson, sem er í MA.

Ágúst Leó Sigurfinnsson, sem er sautján ára gamall, stundar nám á fyrsta ári í rafdeild VMA. Hann er Norðfirðingur en flutti með fjölskyldu sinni frá Neskaupstað til Akureyrar eftir 9. bekk, lauk 10. bekk á Akureyri og fór síðan í MA. Breytti um kúrs í upphafi þessa skólaárs og fór í rafdeildina í VMA. Til hliðar við námið er ekki ofsögum sagt að Ágúst Leó haldi meira og minna til á blakvellinum. Hann spilar með KA-liðinu á Akureyri og er þar að auki í A-landsliði karla í blaki, yngri landsliðum Íslands og einnig spilar hann fyrir Íslands hönd í strandblaki.

Það er rík hefð fyrir blakinu í Neskaupstað og í Þrótti þar í bæ tók Ágúst Leó fyrstu slögin ungur að árum. Hann spilaði líka fótbolta í uppvextinum eystra en hallaði sér síðan alfarið að blakinu, sem heillaði meira. Og árangurinn lét ekki á sér standa. Það segir heilmikið til um hversu öflugur blakmaður Ágúst Leó er orðinn að í uppgjöri Unbrokendeildar karla í blaki sl. vetur valdi Blaksambandið hann efnilegasta leikmann deildarinnar og KA valdi hann sömuleiðis efnilegast leikmann liðsins að loknu síðasta tímabili. Og þetta var síðan rækilega undirstrikað á dögunum þegar Ágúst Leó var valinn besti kantmaðurinn og í úrvalslið U20 forkeppni EM eða SCA-mótsins í blaki, sem fram fór í Skotlandi dagana 16.–18. október. Íslenska U20 landsliðið gerði sér þar lítið fyrir og vann mótið og tryggði sér þátttökurétt á lokamóti Evrópumóts U20 karla, sem fram fer í Króatíu og Svartfjallalandi 21.–30. júlí á næsta ári. Íslenska liðið vann alla leiki sína á mótinu, gegn Skotlandi, Írlandi og Norður-Írlandi. Þar með er ljóst að bæði U20 karla- og kvennalandsliðs Íslands, karla og kvenna, hafa tryggt sér sæti á lokamótum Evrópumótsins næsta sumar. U20 kvennalandsliðið tryggði sér þátttökurétt fyrr í mánuðinum með sigri á SCA-mótinu í San Marínó, eins og hefur komið fram hér á heimasíðunni.

Raunar er þetta ekki í fyrsta skipti sem Ágúst er valinn besti leikmaður í sinni stöðu því það var einnig upp á teningnum 2024 þegar U17 landsliðið spilaði á Norður-Evrópumóti. Þá spilaði liðið á móti sterkum þjóðum eins og Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð og Englandi og lenti í öðru sæti. Ágúst var valinn í úrvalslið mótsins sem besti „díóinn“.

Sem fyrr segir er í mörg horn að líta hjá Ágústi Leó í blakinu. Ekki aðeins er hann í U20 landsliði Íslands heldur einnig í U18 liðinu og hann spilaði fyrstu leikina með A-landsliðinu sl. sumar. Að ógleymdu strandblakinu, sem hann stundar á sumrin. Raunar var Ágúst í sumarvinnu á höfuðborgarsvæðinu sl. sumar og til hliðar æfði hann blak með A-landsliðinu og U18 landsliðinu og strandblak með U18 og U20 landsliðunum. Í það heila fór Ágúst í fjórar keppnisferðir til Evrópu sl. sumar  – með A-landsliðinu og U18 landsliðinu í inniblaki og U18 og U20 landsliðinum í strandblaki.

Það segir sitt um blakdagskrána hjá Ágústi að það sem af er þessu ári hefur hann farið í átta landsliðsferðir til útlanda:

U18 - SCA-mót - Írland 11.-15. janúar
A-landslið - æfingaferð - England 29.-31. maí

A-landslið - European League - Danmörk 5.-8. júní
A-landslið - European League - Grikkland 11.-14. júní
U18 - Lokamót EM - Ítalía 5.-16. júlí
U20 - Lokamót EM strandblak - Ítalía 2.-6. september
U18 - Lokamót EM strandblak - Tyrkland 15.-20. september
U20 - SCA-mót - Skotland 15.-19. október

Að vonum er heilmikið æfingaálag hjá blakmönnum eins og öðrum afreksíþróttamönnum. Ágúst segir að leikmenn KA æfi seinni part dags alla virka daga – og raunar séu tvær æfingar á mánudögum – og einnig séu stundum æfingar um helgar ef liðið er ekki að spila leiki. Og til viðbótar er auðvitað fullt af landsliðsæfingum.

Ágúst Leó segir vissulega heilmikið púsluspil að samræma námið og blakið, ekki síst geti það verið flókið í verklega hlutanum í rafdeildinni. En með góðu skipulagi og skilningi kennara og skólans gangi þetta upp. Hann segist ekki geta neitað því að í framtíðinni hafi hann áhuga á því að reyna fyrir sér í blaki utan landssteinanna en hann vilji fyrst ljúka náminu í VMA.