Í námi í VMA og spilar með KA og þremur yngri landsliðum í blaki
Auk náms á íþrótta- og lýðheilsubraut VMA er heldur betur nóg að gera hjá Ingu Björgu Brynjúlfsdóttur í blakinu. Hún æfir og spilar á fullu sem kantspilari með meistaraflokki KA og er þar að auki í þremur yngri landsliðum Íslands í blaki, U-17, U-18 og U-20.
Inga Björg er Húsvíkingur. Hún lauk 10. bekk grunnskóla á Húsavík sl. vor og hóf nám núna á haustönn á íþrótta- og lýðheilsubraut VMA. Flestum sínum frístundum ver hún í blakið. Áður en hún kom til Akureyrar og hóf nám í VMA æfði hún og spilaði með uppeldisfélaginu, Völsungi á Húsavík. Síðastliðinn vetur spilaði Inga Björg sem sagt í græna félagsbúningi Völsungs gegn gulklæddu stelpunum í KA en nú hefur þetta snúist við, Inga Björg klæðist gulu og spilar gegn fyrrum liðsfélögum í Völsungi. Reyndar tók Völsungur á móti KA í annarri umferð Unbroken deildarinnar í blaki á Húsavík sl. miðvikudagskvöld og hafði KA 3-0 sigur. Inga Björg dregur ekki dul á að það hafi verið skrítið að spila gegn uppeldisfélagi sínu, sem hún hefur alla tíð spilað fyrir, en nú sé hafinn nýr kafli, á meðan hún stundi nám við VMA æfi hún og keppi með KA. KA-liðið er á toppi deildarinnar eftir tvær umferðir, því það sigraði Þrótt R í fyrstu umferðinni. Og leikinn um meistara meistaranna (sem er á milli Íslands og bikarmeistara síðasta árs) vann KA einnig. Það er því óhætt að segja að tímabilið byrji vel.
Inga Björg rifjar upp að hún hafi frá unga aldri spilað fótbolta í grænu treyju Völsungs en síðan hafi hún prófað blakið og fært sig alfarið yfir í það 2024. En af hverju skipti hún yfir í blakið? „Mér fannst ég hreinlega betri í blakinu og það heillaði mig meira en fótboltinn,“ segir Inga Björg.
Auk þess að spila með KA er Inga Björg á fullu í yngri blaklandsliðum Íslands. Hún er fædd árið 2010 og því aðeins sextán ára gömul. Hún er því gjaldgeng í U-17 liði Íslands og einnig spilar hún með U-18 og U-20 liðunum. Síðastliðið sumar spilaði hún með U-18 liðinu á EM í Lettlandi, á dögunum var hún í San Marino og var þar í sigurliði Íslands í Evrópukeppni sjö smáþjóða. Ísland spilaði hörku úrslitaleik við heimastúlkur frá San Marino og hafði betur, 3-2. Inga Björg segir að það hafi verið mikil upplifun að spila þennan úrslitaleik, heimastúlkur hafi verið hvattar dyggilega áfram af áhorfendum en þrátt fyrir það hafi tekist að knýja fram sigur í oddahrinu. Í íslenska liðinu í San Marino voru fjórar aðrar stúlkur úr KA-liðinu, ein þeirra, Anika Snædís Gautadóttir, stundar einnig nám við VMA, er á öðru ári á íþrótta- og lýðheilsubraut.
Sigurinn í San Marino þýðir að íslenska liðið spilar næsta sumar á Evrópumeistaramótinu í þessum aldursflokki, sem Inga Björg segir að verði án efa það stærsta sem hún hefur glímt við á blakvellinum, enda væntanlega keppt við stórar og sterkar blakþjóðir.
Inga Björg stoppar stutt við á landinu eftir góða ferð með U-20 liðinu til San Marino því um helgina liggur leið hennar og liðsfélaga í U-17 landsliðinu til Ikast í Danmerku þar sem það tekur þátt í – NEVZA-blakmótinu (North European Volleyball Zonal Association) 12.-14. október.
„Það er í senn gaman og krefjandi að vera komin í Verkmenntaskólann og jafnframt að æfa og spila með nýju liði. Á þessum tveimur mánuðum sem ég hef æft og spilað með KA hef ég lært heilan helling. Það er haldið vel utan um hlutina í blakinu hjá KA,“ segir Inga Björg.
Af framangreindu má ráða að Inga Björg er bráðefnileg blakkona og hún á sannarlega framtíðina fyrir sér í íþróttinni. Um framtíðina er alltaf erfitt að spá en Inga Björg segir að hugurinn leiti út fyrir landssteinana til að æfa og spila blak. Þó ekki fyrr en hún hafi lokið stúdentsprófi af íþrótta- og lýðheilsubraut VMA.