Fara í efni

Hvað eru margar bækur í bókajólatrénu '26?

Eins og venja er til er bókajólatré ársins á bókasafninu hið veglegasta. Lesefnið er sannarlega fjöl…
Eins og venja er til er bókajólatré ársins á bókasafninu hið veglegasta. Lesefnið er sannarlega fjölbreytt!

Aðventan hefst nk. sunnudag, 29. nóvember - fyrsti af fjórum sunnudögum í aðventu. Þessum tíma, aðventunni og síðan jólunum, fylgja margar hefðir. Fólk er vanafast og vill hafa hlutina eins og þeir voru í fyrra og árið áður. Á bókasafni VMA hefur smám saman orðið til sú hefð að setja þar upp bókajólatré sem samanstendur að sjálfsögðu af bókum. Og þetta ár er þar engin undantekning, bókajólatré ársins er komið á sinn stað. Byggingarmeistarar eru þær stöllur á bókasafninu, Hanna Þórey Guðmundsdóttir og Dagný Hulda Valbergsdóttir.

Að sjálfsögðu er ekki sama hvernig slíkt mannvirki er byggt. Eins og í byggingum verða undirstöðurnar að vera burðarmiklar og öruggar. Þar koma sterkar inn nokkrar alfræðiorðabækur Britannica og Saga mannkyns í mörgum bindum er líka betri en engin. Ofarlega ber mikið á glæpasögum eftir íslenska höfunda og á toppnum eru nokkrar Íslendingasögur. Þjóðlegra getur það sem sem sagt ekki verið.

Bókajólatréð er ekki bara augnayndi, hér gefst líka tækifæri til þess að skjóta á hversu margar bækurnar eru í því í ár. Allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir til þess að taka þátt í getrauninni, skunda inn á bókasafn og skrifa nöfn sín og gisktölur á miða og setja í þar til gerðan getraunakassa. Hanna Þórey og Dagný Hulda hafa ekki hugmynd um hversu margar bækurnar eru en þegar tréð verður fellt í janúar koma þær til með að telja bækurnar nákvæmlega og þá kemur hin rétta tala í ljós. Hér á heimasíðunni verða birtar niðurstöður talningarinnar og jafnframt hver kemst næst því að giska á réttan fjölda bóka.

Til þess að gefa smá hugmynd um hvað gætu leynst margar bækur í bókajólatré ársins skal þess getið að á síðasta ári reyndust vera 287 bækur í trénu. Í ár sýnist tréð vera eilítið stærra.