Fara í efni

Húsasmiðirnir í flugstjórnarklefanum

Húsasmiðirnir og flugmennirnir Ísak Svavarsson (t.v.) og Bárður Hólmgeirsson í Boeing 737-800 hermi …
Húsasmiðirnir og flugmennirnir Ísak Svavarsson (t.v.) og Bárður Hólmgeirsson í Boeing 737-800 hermi í Dublin í október sl. Þeir hafa nú lokið flugnámi og fengið atvinnuflugmannsréttindi.

Eins og svo margir drengir horfði Akureyringurinn Ísak Svavarsson til himins ungur að árum og hugsaði með sér að hann ætlaði að verða flugmaður þegar hann yrði stór. Sumir æskudraumar rætast, aðrir ekki. Æskudraumur Ísaks rættist. Hann lauk atvinnuflugmannsnámi í október sl. og það gerði líka æskuvinur hans, Bárður Hólmgeirsson. Frá unga aldri hafa þeir fylgst að í lífinu. Báðir fóru þeir í húsasmíði í VMA og eru útskrifaðir húsasmiðir. Þeir mátu það svo að gott væri að hafa í handraðanum full starfsréttindi í iðngrein til hliðar við flugmanninn, enda er það nú svo að fyrir unga flugmenn getur verið erfiðleikum bundið, til að byrja með í það minnsta, að fá heilsársráðningu. Hér á landi eru atvinnumöguleikarnir langmestir á sumrin, þegar mest er um að vera í ferðaþjónustunni, en svo hægir á yfir veturinn og þá fækka flugfélögin flugmönnum í sínum röðum.

„Það er svolítið magnað hversu nánir við Bárður höfum verið alla tíð. Það liggur við að við höfum fyrst hist á fæðingardeildinni því það munar ekki nema sex dögum á okkur. Við vorum með sömu dagmömmu og vorum lengst af í sama leik- og grunnskóla hér á Akureyri.
Ætli ég hafi ekki verið 8-10 ára þegar Flugskóli Akureyrar bauð krökkum upp á að kynnast starfi skólans og fljúga í nokkrar mínútur með flugkennara. Mig minnir að upp á þetta hafi verið boðið tvisvar á ári í líklega fjögur ár og ég mætti alltaf. Þarna gerðist eitthvað, mér fannst þetta stórkostlegt og ég var ákveðinn að þetta skyldi ég leggja fyrir mig,“ segir Ísak.

Síðan liðu nokkur ár og þegar komið var í efri bekki grunnskóla kom upp í umræðu þeirra félaganna hvort þeir ættu að láta verða af því að fara í flugið. Úr verður að Bárður fer í einkaflugmannsnám í Flugskóla Akureyrar. Í ljósi þess að Ísak var – og er – með gleraugu var honum ráðlagt að fara í sjónmat. Niðurstaða þess var á þann veg að sjón hans væri þess eðlis að hann gæti ekki orðið atvinnuflugmaður, honum var því hafnað um að fara í flugnám. Ísak taldi þessa niðurstöðu ranga. Baráttan við Samgöngustofu fyrir endurupptöku málsins tók á fjórða ár. Að lokum var viðurkennt að sjón Ísaks hamlaði á engan hátt að hann gæti farið í flugnám. Og það gerði hann. 

„Ég fór í fyrsta flugtímann í apríl 2023 og nokkrum vikum síðar útskrifaðist ég úr húsasmíðinni úr VMA, eins og Bárður. Hann hafði þá lokið sínu einkaflugmannsnámi. Eftir að hafa lokið við smíðanámið hellti ég mér í einkaflugmannsnámið og lauk því á ellefu mánuðum. Bóklega hlutann í náminu tók ég á tímabilinu október 2023 til mars 2024. Með náminu vann ég á fullu í húsasmíðinni. Ég lauk einkaflugmannsnáminu í september 2024 og var þá kominn á sama stað og Bárður að því frátöldu að hann hafði safnað fleiri flugtímum en ég.
Í janúar 2025 fórum við síðan saman í bóklega atvinnuflugmannsnámið í fjarnámi frá skóla í Bristol í Bretlandi. Þetta var mjög strembið nám og það þurfti mikinn sjálfsaga til þess að komast í gegnum það.
Þegar við byrjuðum í þessum bóklega hluta atvinnuflugnámsins ákváðum við að hætta að vinna í smíðunum, sem við höfðum báðir verið í á fullu, og einbeita okkur að náminu. Reyndar tókum við einstaka verkefni að okkur í smíðunum um helgar. Bóknámið tókum við á um tíu mánuðum, lukum því í byrjun október 2025. Við lögðum áherslu á að vera mjög skipulagðir í þessu. Ef við mögulega gátum hófum við daginn í ræktinni og fórum síðan að læra, aldrei seinna en um hálf tíu. Suma daga byrjuðum við að læra klukkan átta. Við vorum aldrei skemur en til fimm á daginn og í aðdraganda prófa, í einn til tvo mánuði fyrir próf, sátum við og lærðum meira og minna frá átta á morgnana til ellefu á kvöldin. Við fengum að sjálfsögðu mikinn stuðning hvor frá öðrum og ég er þess fullviss að okkur hefði aldrei gengið svo vel að komast í gegnum þetta ef við hefðum ekki unnið saman að þessu verkefni.
Eftir að hafa lokið bóklega hlutanum ákváðum við að taka upp þráðinn í smíðunum og vinna í nokkra mánuði og safna pening áður en við færum áfram í verklega hlutann. Við unnum hjá SS Byggi frá október 2025 til febrúar á þessu ári. Þá fórum við í fimm vikur til Mallorca til þess að safna flugtímum. Þrátt fyrir að við værum frekar óheppnir með veður náðum við fljúga þar um 80 flugtíma. Síðan fórum við til Svíþjóðar í júní og vorum þar í um átta vikur í virtum flugskóla sem töluverður hópur Akureyringa hefur sótt. Þar fengum við í fyrsta skipti að fljúga fjögurra manna tveggja hreyfla vél. Flugtíminn á svona vél kostar um 140 þúsund krónur. Við getum því ímyndað okkur hver kostnaðurinn væri pr. flugtíma á enn stærri vél. En þó svo að vélin væri ekki stærri en þetta hefur hún allan þann búnað sem nauðsynlegur er til þess að fljúga blindflug. Á þessum átta vikum í Svíþjóð kláruðum við allt verklegt atvinnuflugmannsnám og fengum að þessum tíma loknum réttindi til þess að fljúga svokallaðri fjölhreyflavél og einnig útskrifuðumst við með blindflugsréttindi, í rauninni útskrifuðumst við með atvinnuflugmannsskírteini sem á ensku eru kölluð CPL - Commercial Pilot Licence. Þetta stig flugnámsins gefur okkur heimild til þess að læra á og fá þjálfun á tilteknar tegundir flugvéla.
Síðasti áfanginn í náminu var síðan í sautján daga í Dublin á Írlandi núna á haustdögum. Þar fórum við í gegnum 24 klukkustunda bóklega kennslu og 40 flugtíma í hermi á Boeing 737-800 vél. Það kom sér vel að við Bárður höfum lært saman því þarna þurftu tveir nemendur að vera saman í herminum. Af 40 flugtímum flýgur hvor okkar 20 tíma sem flugstjóri og 20 tíma sem flugmaður. Þetta voru mjög skemmtilegir dagar í Dublin og það skilaði sér vel hversu vel við Bárður þekkjum hvor annan. Við fórum fram úr okkar eigin væntingum og kennararnir voru mjög ánægðir með okkur. Náminu lukum við sem sagt í Dublin núna í október síðastliðnum,“ segir Ísak.

En hvað er svo framundan hjá húsasmiðunum og nú einnig flugmönnunum Ísaki og Bárði? Næsta skref segir Ísak að sé að sækja um vinnu í fluggeiranum og einmitt þessa dagana eru þeir að leggja drög að umsóknum. Í rauninni er allur heimurinn undir í þessum efnum enda eru flugmannsréttindi alþjóðleg. Sum félög, m.a. Icelandair, greiða fyrir þá þjálfun sem flugmennirnir þurfa að taka áður en þeir fara að fljúga tilteknum vélum en í öðrum tilfellum er flugmönnum gert að greiða þjálfunina sjálfir og þar getur verið um að ræða nokkrar milljónir króna til viðbótar við flugnámið sjálft.

Ísak segir það vissulega stóran fjárhagslegan pakka að fara í flugnám. Honum sýnist að þegar upp er staðið kosti flugnámið allt að átján milljónir króna. Þetta er því hreint ekki auðvelt að klífa fjárhagslega því námið er ekki lánshæft. Ísak segir að það hafi komið sér sérlega vel að hafa valið þá leið að læra húsasmiðinn því hann hafi alltaf getað gripið í smíðarnar með flugnáminu. Og það sé heldur ekki ónýtt að hafa smíðarnar í bakhöndinni í framtíðinni þegar og ef illa ári í fluginu.